Sjávarútvegur

Innan veggja Capacent liggur mikil þekking og reynsla á starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja, hvort sem um er að ræða innlendan sjávarútveg eða alþjóðlegan. Ráðgjafar okkar hafa um árabil unnið sem starfsmenn sjávarútvegsfyrirtækja og/eða sem ráðgjafar við atvinnuveginn og skilja þannig tungumál greinarinnar og þær sveiflur sem henni fylgja. Sjávarútvegur er mjög háður ýmsum ytri skilyrðum, hvort sem er tengdum veiðum, markaðssetningu eða stjórnmálalegri stefnumótun. Af þessum sökum eru sveiflur í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja oft miklar. Til að veita sjávárútvegsfyrirtækjum faglega ráðgjöf er lykilatriði að ráðgjafar þekki vel til geirans.

Sérhæfðar og almennar lausnir
Þegar kemur að stærri verkefnum, felst styrkur Capacent í þeirri miklu breidd sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða í alhliða lausnum fyrir sjávarútvegsfyrirtæki. Þar vinna saman ráðgjafar í stefnumótun, ferlum, áætlanagerð, mannauðsmálum, markaðsrannsóknum og á fleiri sviðum. Capacent getur þannig tekið að sér afmarkaða hluta verkefnis eða eða boðið fram heildarlausn frá hugmynd að fjármögnun og framkvæmd.

Capacent býður upp á fjármálaráðgjöf sem snýr að gerð virðisrýrnunarprófa, hagkvæmnisathugunum og hlutlausu áliti á fjármálagerningum. Hvað almenna ráðgjöf varðar þá hafa ráðgjafar fyrirtækisins mikla reynslu í ráðgjöf tengdri stefnumótun og áætlanagerð hjá sjávarútvegsfyrirtækjum.

Nánari upplýsingar:

Þröstur Sigurðsson (throstur.sigurdsson@capacent.is)

Print Bookmark and Share

Dæmi um lausnir

Smíði rekstrar- og fjármálalíkana
Gerð fjármálalíkana fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, allt frá einföldum...meira

Fjárhagsleg endurskipulagning
Samkomulag stjórnvalda, atvinnulífsins og fjármálafyrirtækja opnar nýjar leiðir við skuldaaðlögun...meira