Capacent hefur unnið að ýmsum stefnumótunar- og rekstrarverkefnum fyrir heilbrigðisgeirann. Starfsmenn Capacent í Danmörku hafa t.a.m. langa reynslu af því að vinna með dönskum heilbrigðisyfirvöldum. „Styrkur okkar liggur í því að vinna greiningar fyrir heilbrigðisgeirann, leggja mat á umhverfið og líklega framtíð. Við höfum innan okkar raða fólk sem hefur unnið fyrir heilbrigðisgeirann og gjörþekkir þetta umhverfi,“ segir Friðfinnur Hermannsson, ráðgjafi hjá Capacent.
Krafan um toppþjónustu
Í fyrstu grein laga um heilbrigðisþjónustu segir að allir landsmenn eigi jafnan rétt á sem bestri heilbrigðisþjónustu eins völ er á hverju sinni. Það verður því eilífðarverkefni heilbrigðisþjónustunnar að veita hámarksþjónustu en jafnframt að fara vel með skattpeningana. Mikið umrót hefur verið í heilbrigðismálum á Vesturlöndum og ljóst er að miklar breytingar eru framundan, enda eru þjóðir að eldast hægt og bítandi. Þess vegna er kallað á nýjar lausnir. Capacent býður upp á heildarlausnir fyrir stjórnvöld, fyrirtæki og stofnanir á sviði heilbrigðisþjónustu, allt frá stefnumótun, skipulagi, ferlum og mannauði.
Ráðgjafar Capacent hafa mikla þekkingu og reynslu í framkvæmd heilbrigðisrannsókna af ýmsu tagi og leggjum við áherslu á að auka slíkar rannsóknir á næstu árum.
Ráðgjafar Capacent leggja mikla áherslu á að virkja þekkinguna innanhúss. Þeir sem eiga að vinna með lausnir eru virkjaðir í ferlinu þannig að þekking þeirra komi að fullum notum. Við fylgjum innleiðingunni eftir og höfum reynslu og þekkingu í að þjálfa starfsmenn og stjórnendur viðkomandi fyrirtækja og stofnana. Jafnframt erum við sérfræðingar í sjálfri starfseminni, í ferlunum, í tölvumálum, innkaupamálum og allri vinnu sem lítur af rafrænum sjúkraskrám. Fyrir stjórnendur er einnig lykilatriði að ráða inn rétta fólkið og meta hæfni þeirra þannig að hámarksárangur náist.
Nánari upplýsingar:
Arnar Jónsson (arnar.jonsson@capacent.is)