Væntingavísitala Gallup

Væntingavísitala Gallup er byggð á fimm spurningum:
  • Mati á núverandi efnahagsaðstæðum.
  • Væntingum til efnahagslífsins eftir 6 mánuði.
  • Mati á núverandi ástandi í atvinnumálum.
  • Væntingum til ástands í atvinnumálum eftir 6 mánuði.
  • Væntingum til heildartekna heimilisins eftir 6 mánuði.

Fyrir hverja spurningu hér að ofan er deilt í fjölda jákvæðra svara með fjölda jákvæðra og neikvæðra svara. Útkoman er hlutfall sem er síðan margfaldað með 200 og þá fæst breyta sem getur tekið gildið 0-200. Það að Væntingavísitala Gallup sé á tilteknum tíma 100 merkir því að það eru jafn margir jákvæðir og neikvæðir svarendur. Ef hún er hærri en 100 eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru fleiri neikvæðir.

 

Print Bookmark and Share