Þjóðarpúlsinn

Skattheimta á mismunandi hópa

12.08.2010

Gallup kannaði ennfremur viðhorf til skattheimtu á mismunandi tekjuhópa. Þegar spurt var um skatta á hátekjufólk taldi um 20% almennings þá of háa, tæplega 23% taldi þá hæfilega og ríflega 57% taldi þá of lága. Viðhorf almennings til skatta á þá sem eru með meðaltekjur var á þá leið að 62% taldi þá of háa, rúmlega 35% taldi þá hæfilega og liðlega 2% töldu þá of lága. Þegar viðhorf til skatta á þá tækjulægstu var kannað kom í ljós að tæplega 78% töldu þá of háa, 21% hæfilega og rúmlega 1% of lága.



Spurt var:

  • Finnst þér skattar almennt of háir, hæfilegir eða of lágir á hátekjufólk?
  • Finnst þér skattar almennt of háir, hæfilegir eða of lágir á þá sem eru með meðaltekjur?

  • Finnst þér skattar almennt of háir, hæfilegir eða of lágir á lágtekjufólk?


Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr
netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 30. júní - 27. júlí 20 10. Heildarúrtaksstærð var 4.573 einstaklingar af öllu landinu og var svarhlutfall 65,5%. Vikmörk eru 0,4- 2,0%. Mæling á viðhorfi til skattamála, ríkisfjármála og stöðu heimilanna eru úr netkönnun sem gerð var dagana 14. - 27. júlí. Svarhlutfall var 64,8%, úrtaksstærð 2. 319 einstaklingar. Í öllum úrtökum var fólk á aldrinum 18 ára eða eldra af öllu landinu, valið af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.

Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.

Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: gaj@capacent.is

Umsjón með útgáfu: Jón Karl Árnason.

Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

 

 

 

 

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share