Þjóðarpúlsinn

Fjárhagur heimilanna

12.08.2010

Gallup kannaði fjárhagsstöðu heimilanna nú en sama spurning var lögð fyrir í nóvember 2009. Tæplega 12% sögðu heimili sitt safna skuldum, 19% sögðu að sparifé væri notað til að ná endum saman, 38% ná endum saman með naumindum, rúmlega 27% geta safnað svolitlu sparifé og liðlega 4% sögðu að heimili þeirra gæti safnað talsverðu sparifé. Þeim heimilum sem nota sparifé til að ná endum saman fjölgar frá því í nóvember úr 16% í 19%. Að sama skapi fjölgar þeim sem ná endum saman með naumindum úr 35% í 38%. Ennfremur fækkar þeim sem geta safnað sparifé, í nóvember sögðu 38% að heimilið gæti safnað sparifé á móti 31% nú.  

Um fimmtungur þeirra sem eru 30-49 ára safna skuldum á móti tæplega 5% þeirra sem eru 60 ára eða eldri. Þá er einnig munur á fjárhagi heimilanna þegar greint er eftir fjölskyldutekjum. Um tvö af hverjum þremur heimilum sem eru með milljón eða meira í fjölskyldutekjur geta safnað sparifé á meðan rúmlega 5% þeirra heimila sem eru með 250 þúsund eða minna geta safnað sparifé. Á móti safna 18% þeirra heimila sem hafa lægstu fjölskyldutekjurnar skuldum en einungis 2% þeirra heimila sem hafa milljón eða meira í fjölskyldutekjur.

 

 

Spurt var:

  • Hver af eftirtöldum fullyrðingum á best við um fjárhag heimilsins?

 

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 30. júní - 27. júlí 2010. Heildarúrtaksstærð var 4.573 einstaklingar af öllu landinu og var svarhlutfall 65,5%. Vikmörk eru 0,4-2,0%. Mæling á viðhorfi til skattamála, ríkisfjármála og stöðu heimilanna eru úr netkönnun sem gerð var dagana 14. - 27. júlí. Svarhlutfall var 64,8%, úrtaksstærð 2.319 einstaklingar. Í öllum úrtökum var fólk á aldrinum 18 ára eða eldra af öllu landinu, valið af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.

Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.

Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: gaj@capacent.is

Umsjón með útgáfu: Jón Karl Árnason.

Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

 

 

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share