Viðhorf til tillagna Alþjóðagjaldeyrissjóðins um breytingar á skattkerfinu
11.08.2010

Fleiri konum en körlum líst illa á tillögurnar, liðlega 88% kvenna líst illa á tillögurnar á móti tæplega 80% karla. Þegar viðhorf fólks til tillagnanna er greint eftir því hvaða flokk fólk myndi kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag kemur í ljós að almennt líst flestum kjósendum Sjálfstæðisflokksins illa á tillögurnar eða 94% þeirra. Tæplega 88% kjósenda Framsóknarflokksins líst illa á tillögur AGS, 75% kjósenda Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og 61% kjósenda Samfylkingarinnar.
Gallup spurði almenning einnig hvort hann teldi æskilegra að ríkið hækkaði skatta, drægi úr útgjöldum eða gerði hvort tveggja. Flestir, eða tæplega 68%, töldu að ríkið ætti að draga úr útgjöldum.
Rúmlega 3% töldu æskilegt að hækka skatta en tæplega 29% aðspurðra töldu að bæði ætti að draga úr útgjöldum og hækka skatta. Konur eru frekar hlynntari því en karlar að ríkið dragi úr útgjöldum, 76% þeirra töldu það æskilegast samanborið við 60% karla. Karlar vilja aftur á móti frekar draga bæði úr útgjöldum og hækka skatta, 35% karla töldu það æskilegasta kostinn á meðan tæplega 22% kvenna eru sömu skoðunar. Nær 77% þeirra sem hafa einungis lokið grunnskólaprófi telja æskilegast að ríkið dragi úr útgjöldum á móti 62% þeirra sem hafa lokið háskólaprófi. Að sama skapi telja 36% þeirra sem hafa lokið háskólaprófi æskilegast að ríkið dragi bæði úr útgjöldum og hækki skatta á móti 19% þeirra sem hafa lokið grunnskólaprófi. Töluverður munur er á afstöðu fólks eftir því hvort það styður ríkisstjórnina eða ekki. Um 80% þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina telja æskilegast að ríkið dragi úr útgjöldum á meðan 45% þeirra sem styðja ríkisstjórnina eru sama sinnis.
Spurt var:
Nýlega voru kynntar tillögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um breytingar á skattkerfinu. Hversu vel eða illa líst þér á þessar tillögur?
Hvort telur þú æskilegra að ríkið hækki skatta, dragi úr útgjöldum ríkissjóðs eða geri hvort tveggja; hækki skatta og dragi úr útgjöldum?
-
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 30. júní - 27. júlí 20 10. Heildarúrtaksstærð var 4.573 einstaklingar af öllu landinu og var svarhlutfall 65,5%. Vikmörk eru 0,4- 2,0%. Mæling á viðhorfi til skattamála, ríkisfjármála og stöðu heimilanna eru úr netkönnun sem gerð var dagana 14. - 27. júlí. Svarhlutfall var 64,8%, úrtaksstærð 2. 319 einstaklingar. Í öllum úrtökum var fólk á aldrinum 18 ára eða eldra af öllu landinu, valið af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: gaj@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.
Allir Þjóðarpúlsar