Þjóðarpúlsinn

Fylgi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs minnkar mikið milli mánaða

06.07.2010





Allnokkrar breytingar eru á fylgi flokkanna milli maí og júní og segjast sex prósentustigum færri ætla að kjósa Vinstrihreyfinguna - grænt framboð nú en fyrir mánuði. Ef kosningar til Alþingis færu fram í dag segist um 21% ætla að greiða flokknum atkvæði sitt. Fylgi flokksins hefur ekki mælst minna síðan í júlí í fyrra. Um þriðjungur segist ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar fram í dag, sem er um þremur prósentustigum meira en fyrir mánuði. Flokkurinn mælist nú með svipað fylgi og hann mældist með í könnunum fram að birtingu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um miðjan apríl. Tæplega 23% segjast myndu kjósa Samfylkinguna sem er litlu meira en fyrir mánuði. Liðlega 12% myndu kjósa Framsóknarflokkinn sem er um tveimur prósentustigum minna en í maí. Þetta er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með á kjörtímabilinu. Um tíundi hver kjósandi myndi kjósa aðra flokka, þar af segjast tæplega 4% myndu kjósa Hreyfinguna, um 3% Besta flokkinn, tæplega 2% Borgarahreyfinguna og liðlega 1% Frjálslynda flokkinn.
Tæplega 12% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rúmlega 15% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.





Þegar fylgi flokkanna er skoðað eftir kjördæmum kemur í ljós að Framsóknarflokkurinn er með undir 10% fylgi í kjördæmunum á höfuðborgarsvæðinu, en um og yfir 20% í Norðvestur– og Norðausturkjördæmi. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í Suðvesturkjördæmi eða 39% en minnst fylgi í Norðausturkjördæmi, þar sem hann er einungis með 23% fylgi. Samfylkingin er sterkust í Reykjavík og mælist með 26-27% fylgi í hvoru kjördæminu. Hins vegar er hún með minnst fylgi í Norðausturkjördæmi og litlu meira fylgi í Norðvesturkjördæmi. Vinstrihreyfingin - grænt framboð er stærsti flokkurinn í Norðausturkjördæmi en þriðjungur íbúa kjördæmisins segist myndi kjósa flokkinn. Hins vegar er staða flokksins veikust í Suðvesturkjördæmi, en einungis 17% myndu kjósa flokkinn þar. Fylgi annarra flokka dreifist nokkuð jafnt og er á bilinu 6-12%, minnst í Norðausturkjördæmi.
Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um fjögur prósentustig milli mánaða og segist 41% styðja ríkisstjórnina nú. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist meiri meðal kvenna en karla en ríflega 46% kvenna styðja stjórnina samanborið við tæplega 37% karla. Ríkisstjórnin nýtur álíka stuðnings meðal kjósenda beggja stjórnarflokkanna, en um 93% kjósenda hvors flokks styðja hana.


Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?


Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 28. maí - 30. júní 2010. Heildarúrtaksstærð var 5.596 einstaklingar af öllu landinu og var svarhlutfall 68,7%. Vikmörk eru 0,4-1,7%. Mæling á viðhorfi til Evrópusambandsins og atriða er lúta að aðild að því eru úr netkönnun sem gerð var dagana 10. - 24. júní. Svarhlutfall var 67,6%, úrtaksstærð 2.311 einstaklingar. Í öllum úrtökum var fólk á aldrinum 18 ára eða eldra af öllu landinu, valið af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share