Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og fyrir áramót
05.03.2010
Ríkisstjórnin nýtur nú stuðnings 47% svarenda sem er sama hlutfall og sagðist styðja stjórnina í nóvember. Stuðningur við stjórnina minnkar því um þrjú prósentustig síðan í janúar.
Helstu breytingar á fylgi flokkanna milli mánaða eru þær að fylgi Samfylkingarinnar minnkar um tvö prósentustig og segjast 23% myndu kjósa flokkinn færu kosningar fram nú. Framsóknarflokkurinn bætir við sig um einu prósentustigi milli mánaða og segjast ríflega 14% myndu kjósa flokkinn ef kosningar færu fram í dag. Vinstrihreyfingin - grænt framboð bætir lítillega við sig milli mánaða og mælist flokkurinn nú með stuðning tæplega 26% kjósenda. Ríflega 32% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem er sama hlutfall og í síðasta mánuði. Tæplega fimm prósent segjast myndu kjósa aðra flokka. Inni í þeirri tölu eru m.a. þeir sem myndu kjósa Frjálslynda flokkinn, Borgarahreyfinguna og Hreyfinguna en hvert þessara þriggja stjórnmálaafla mælist með um 1% fylgi.
Tæplega 13% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og næstum 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.
Spurt var:
- Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
- En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
- Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
- Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net– og símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 27. janúar - 28. febrúar 2010. Heildarúrtaksstærð var 6.968 af öllu landinu en þar af voru Reykvíkingar 2.552 og svarhlutfall var 67,1%. Vikmörk á landsvísu eru 0,6-1,5%. Mæling á trausti til stofnana eru úr net– og símakönnun sem gerð var dagana 3. - 22. febrúar. Svarhlutfall var 66,2%, úrtaksstærð 2.988 einstaklingar. Mæling á hvernig kosið yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave eru úr netkönnun sem gerð var dagana 27. janúar - 28. febrúar. Svarhlutfall var 71,0%, úrtaksstærð 5.061 einstaklingur. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18 ára eða eldri af öllu landinu. Í netkönnunum voru þeir valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en í símakönnunum af handahófi úr þjóðskrá.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.