Fylgi Sjálfstæðisflokksins í borginni dalar milli mánaða
05.03.2010Nú þegar tæplega þrír mánuðir eru í kosningar til borgarstjórnar eru flestir sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosningarnar færu fram í dag. Nær 37% segjast myndu kjósa flokkinn sem er um fjórum prósentustigum minna en í janúar.

Tæplega 34% segjast myndu kjósa Samfylkinguna sem er um prósentustigi meira en fyrir mánuði og næstum 19% myndu kjósa Vinstrihreyfinguna - grænt framboð sem er sama og fyrir mánuði. Rúmlega 5% myndu kjósa Framsóknarflokkinn, um 3% myndu kjósa Besta flokkinn og liðlega 2% Frjálslynda flokkinn.
Nær 13% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rúmlega 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef borgarstjórnarkosningar færu fram í dag.
Ef borgarfulltrúum er skipt milli flokka út frá niðurstöðum könnunarinnar fengju Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin 6 borgarfulltrúa hvor og Vinstrihreyfingin - grænt framboð fengi 3 borgarfulltrúa. Sjötti borgarfulltrúi Samfylkingarinnar stendur þó tæpast og þarf litlar breytingar á fylginu til að Sjálfstæðisflokkurinn nái inn sínum sjöunda manni.

Spurt var:
- Ef kosið yrði í dag til borgarstjórnar hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
- En hvaða flokk eða lista er líklegast að þú myndir kjósa?
- Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net– og símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 27. janúar - 28. febrúar 2010. Heildarúrtaksstærð var 6.968 af öllu landinu en þar af voru Reykvíkingar 2.552 og svarhlutfall var 67,1%. Vikmörk á landsvísu eru 0,6-1,5%. Mæling á trausti til stofnana eru úr net– og símakönnun sem gerð var dagana 3. - 22. febrúar. Svarhlutfall var 66,2%, úrtaksstærð 2.988 einstaklingar. Mæling á hvernig kosið yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave eru úr netkönnun sem gerð var dagana 27. janúar - 28. febrúar. Svarhlutfall var 71,0%, úrtaksstærð 5.061 einstaklingur. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18 ára eða eldri af öllu landinu. Í netkönnunum voru þeir valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en í símakönnunum af handahófi úr þjóðskrá.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn