Þjóðarpúlsinn

Ríkisstjórnin nýtur aukins stuðnings kjósenda

05.02.2010







Um helmingur svarenda segist nú styðja ríkisstjórnina, sem er fjórum prósentustigum meira en var í desember. Stuðningur við stjórnina hefur ekki verið meiri síðan í maí 2009.
Helstu breytingar á fylgi flokkanna milli mánaða eru þær að stjórnarflokkarnir bæta við sig fylgi en um fjórðungur segist ætla að kjósa hvorn flokk. Vinstrihreyfingin - grænt framboð bætir þannig við sig um tveimur prósentustigum milli mánaða og Samfylkingin um einu prósentustigi. Ríflega 32% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar fram nú sem er um einu prósentustigi minna en í síðasta mánuði. Rúmlega 13% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn sem er tæplega tveimur prósentustigum minna en fyrir mánuði. Hefur fylgi við flokkinn ekki mælst minna á kjörtímabilinu. Rúmlega fjögur prósent segjast myndu kjósa aðra flokka.
Um 11% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rösklega 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.


Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?




Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu og í Reykjavík eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 5. til 26. janúar 2010. Heildarúrtaksstærð á landsvísu var 6.920 af öllu landinu en þar af voru Reykvíkingar 2.576 og svarhlutfall var 71,5%. Vikmörk á landsvísu eru 0,6-1,5%.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share