Þjóðarpúlsinn

Viðhorf til stjórnarandstöðunnar

06.10.2009

Gallup kannaði viðhorf almennings til starfa stjórnarandstöðunnar og hvort fólk teldi að stjórnarandstöðuflokkarnir myndu ná betri árangri en ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í mikilvægum málaflokkum. Samkvæmt niðurstöðunum eru aðeins 18% landsmanna ánægð með störf stjórnarandstöðunnar en meira en helmingur (51%) er óánægður.
Karlar eru ánægðari með störf stjórnarandstöðunnar en konur. Þegar ánægja með störf stjórnarandsstöðunnar er skoðuð eftir búsetu kemur í ljós að óánægjan er mun meiri á höfuðborgarsvæðinu en annars staðar á landinu.




Þegar spurt var að því hvort fólk teldi að stjórnarandstöðuflokkarnir myndu standa sig betur eða verr en núverandi stjórnarflokkar í ýmsum málum þá skera efnahagsmálin sig nokkuð úr því 35% landsmanna telja að stjórnarandstaðan myndi standa sig betur en núverandi stjórnarflokkar. Á móti telja 37% að hún myndi standa sig verr.




Varðandi heilbrigðismál telja um 26% að stjórnarandstaðan myndi standa sig betur en stjórnarflokkarnir en 42% telja að stjórnarandstaðan myndi standa sig verr. Mjög áþekk niðurstaða er varðandi velferðarmálin en 23% telja að stjórnarandstaðan myndi standa sig betur en núverandi stjórnarflokkar á móti 45% sem telja að stjórnarandstaðan myndi standa sig verr. Þegar kemur að menntamálum telur fimmtungur að stjórnarandstaðan myndi standa sig betur á þessu málefnasviði en núverandi stjórnarflokkar, en rétt um 40% telja þó að stjórnarandstaðan myndi hvorki ná betri né verri árangri en núverandi ríkisstjórnarflokkar á sviði menntamála.

Spurt var:
  • Ert þú ánægð(ur) eða óánægð(ur) með störf stjórnarandstöðunnar?
  • Ef stjórnarandstöðuflokkarnir væru í ríkisstjórn, telur þú að þeir myndu standa sig betur eða verr í ... en núverandi ríkisstjórn gerir?
  • Málefnin sem spurt var um (sjá mynd ofar á síðunni) birtust í tilviljunarkenndri röð.


Niðurstöður sem hér birtast um fylgi stjórnmálaflokka á landsvísu eru úr síma– og netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana
27. ágúst – 28. september. Heildarúrtaksstærð var 7.253 manns af öllu landinu og svarhlutfall var 59,0%. Vikmörk eru 0,5-1,5%. Mæling á ánægju með störf ráðherra og málefni stjórnarandsstöðunnar eru úr netkönnun sem gerð var dagana 17. - 28. september. Svarhlutfall var 61,9% og úrtaksstærð 2.390. Úrtökin í netkönnununum voru tilviljunarúrtök úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Í öll úrtökin voru valdir einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share