Ungt fólk gæti hugsað sér að búa í útlöndum
08.04.2009Í ljósi stöðunnar í þjóðfélaginu kannaði Gallup hug fólks til þess hvort það myndi frekar vilja búa á Íslandi eða í einhverju öðru landi ef það hefði val. Ríflega 15% Íslendinga gætu hugsað sér að búa í öðru landi en á Íslandi og er það sama hlutfall og í mars 1995.
Eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan er mikill munur eftir aldurshópum. Þannig gæti ríflega þriðjungur einstaklinga á aldrinum 18-24 ára hugsað sér að búa í útlöndum og 23% þeirra sem eru á aldrinum 25-34 ára. Að sama skapi myndu einungis 3% fólks 65 ára og eldri velja önnur lönd fram yfir Ísland. Einnig sést á myndinni að kjósendur Framsóknar– og Sjálfstæðisflokks eru líklegri en kjósendur annarra flokka til að taka Ísland fram yfir önnur lönd en 91% kjósenda Sjálfstæðisflokks og 89% kjósenda Framsóknarflokks myndu velja Ísland. Á hinn bóginn myndi um fjórðungur þeirra sem ætlar að kjósa annan flokk en „fjórflokkinn“ velja önnur lönd fram yfir Ísland og um fimmtungur þeirra sem segist myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.
Karlar geta í ríkari mæli en konur hugsað sér að búa í útlöndum en næstum 19% karla geta hugsað sér að búa erlendis samanborið við um 11% kvenna. Eins er hærra hlutfall fólks af höfuðborgarsvæðinu (17%) sem getur hugsað sér að búa í öðru landi en á Íslandi samanborið við 12% þeirra sem búa í öðrum sveitarfélögum. Þegar þeir sem vildu búa í öðru landi en á Íslandi voru spurðir nánar í hvaða landi þeir vildu helst búa nefndu um 17% Bandaríkin, jafn hátt hlutfall nefndi Danmörku og 16% nefndu önnur Norðurlönd. Um 10% gætu hugsað sér að búa á Spáni, um 9% í Kanada og einnig gætu um 9% hugsað sér að búa í Englandi. Færri nefndu önnur lönd.
Spurt var:
Ef þú gætir valið, hvort myndir þú frekar vilja búa á Íslandi eða í einhverju öðru landi?
Í hvaða landi myndir þú helst vilja búa?
Mæling á hamingju Íslendinga og hvort Íslendingar gætu hugsað sér að búa annars staðar en á Íslandi eru úr síma– og netkönnun sem gerð var dagana 15. - 29. mars. Svarhlutfall var tæplega 59% og úrtaksstærð 3.134 einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri af öllu landinu. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.