Lítil breyting á fylgi flokkanna í mars
08.04.2009Á myndinni hér fyrir ofan má sjá þróun á fylgi stjórnmálaflokkanna eftir vikum í mars. Heilt yfir breytist fylgi flokka lítið innan mánaðarins, en Vinstrihreyfingin - grænt framboð sækir þó örlítið í sig veðrið eftir því sem líður á mánuðinn og á sama tíma dalar fylgi Sjálfstæðisflokksins lítillega. Ef einungis er litið á fylgi flokkanna vikuna 25.-31. mars þá mælist Samfylkingin með ríflega 29% fylgi, Vinstrihreyfingin - grænt framboð mælist með næstum 28% fylgi og rösklega fjórðungur segist ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar fram nú. Nær 11% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn, 3% myndu kjósa Borgarahreyfinguna og rösklega 1% segjast myndu kjósa Frjálsynda flokkinn og L-lista Fulllveldissinna. Tæplega 61% segjast styðja ríkisstjórnina síðustu viku marsmánaðar, en stuðningur við stjórnina hefur sveiflast nokkuð síðasta mánuðinn. Ríflega 9% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp síðustu vikuna í mars og rúmlega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.
Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru annars vegar úr netkönnun og hins vegar úr símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 25. – 31. mars. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Heildarúrtaksstærð var 2.451 manns 18 ára og eldri. Svarhlutfall var liðlega 61%. Vikmörk eru 0,6-2,6%. .
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.