Ánægja með frítíma og starf
08.04.2009Þegar þátttakendur voru spurðir hversu ánægðir eða óánægðir þeir væru með hvernig þeir eyða frítíma sínum sagðist rúmur fjórðungur vera mjög ánægður. Helmingur svarenda sagðist vera frekar ánægður með það hvernig hann eyðir frítímanum. Færri eru óánægðir með það hvernig þeir eyða frítímanum nú (11%) en árið 1995 (16%). Karlar eru óánægðari með það hvernig þeir eyða frítíma sínum en konur. Fólk í yngsta aldurshópnum (18-24 ára) og elsta aldurshópnum (55 ára og eldri) er ánægðara með hvernig það eyðir frítíma sínum en aðrir.
Þegar kemur að ánægju með störf eða það sem haft er fyrir stafni dags daglega eru færri sem eru mjög ánægðir með störf sín nú en 1995. Fleiri segjast hins vegar vera frekar ánægðir með störf sín nú en áður. Ríflega 6% eru ýmist mjög eða frekar óánægð með störf sín en sambærilegt hlutfall var 11% árið 1995. Konur eru marktækt ánægðari með störf sín eða það sem þær hafa fyrir stafni dags
daglega en karlar. Einnig er marktækur munur eftir menntun, fjölskyldutekjum og stjórnmálaskoðun.
Spurt var:
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með hvernig þú eyðir frítíma þínum?
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með starf þitt eða það sem þú hefur fyrir stafni dags daglega?
Mæling á hamingju Íslendinga og hvort Íslendingar gætu hugsað sér að búa annars staðar en á Íslandi eru úr síma– og netkönnun sem gerð var dagana 15. - 29. mars. Svarhlutfall var tæplega 59% og úrtaksstærð 3.134 einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri af öllu landinu. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.
Allir Þjóðarpúlsar