Ánægja með fjölskyldulíf og heilsufar
08.04.2009Örlítið hefur dregið úr ánægju Íslendinga með fjölskyldulíf sitt frá 1995 en hlutfall mjög ánægðra hefur lækkað um 6 prósentustig. Konur eru ánægðari með fjölskyldulíf sitt en karlar auk þess sem marktækur munur er eftir aldri, búsetu og fjölskyldutekjum.
Jafnframt dregur nokkuð úr ánægju Íslendinga með eigið heilsufar. Árið 1995 var yfir helmingur landsmanna mjög ánægður með eigið heilsufar en nú er einungis þriðjungur sama sinnis. Marktækur munur er á afstöðu fólks eftir menntun og fjölskyldutekjum. Háskólamenntaðir eru ánægðari með heilsufar sitt en minna menntaðir og þeir sem eru með hærri fjölskyldutekjur eru ánægðari með heilsufar sitt en þeir sem eru með lægri fjölskyldutekjur.

Spurt var:
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með fjölskyldulíf þitt?
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með heilsufar þitt?
Mæling á hamingju Íslendinga og hvort Íslendingar gætu hugsað sér að búa annars staðar en á Íslandi eru úr síma– og netkönnun sem gerð var dagana 15. - 29. mars. Svarhlutfall var tæplega 59% og úrtaksstærð 3.134 einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri af öllu landinu. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.
Allir Þjóðarpúlsar