Ánægja með fjárhagslega afkomu
08.04.2009Gallup spurði landsmenn einnig um ánægju með tekjur heimilisins. Um 13% landsmanna eru mjög ánægð með tekjur heimilisins og 37% eru frekar ánægð en það er nokkur hækkun frá 1995. Hlutfall þeirra sem eru frekar eða mjög óánægðir með tekjur heimilisins hefur hins vegar lækkað umtalsvert frá síðustu mælingu. Nú eru 18% frekar óánægð með tekjur heimilisins en voru naumlega 30% 1995. Tæplega 9% eru mjög óánægð með tekjur heimilisins nú en voru 14% árið 1995. Karlar eru marktækt ánægðari með tekjur heimilisins en konur auk þess sem marktækur munur er eftir menntun, búsetu, stjórnmálaskoðun og fjölskyldutekjum. Íslendingar eru jafnframt ánægðari með lífsgæði sín, þ.e. allt það sem þeir geta keypt og gert, nú en þeir voru fyrir 14 árum. Hlutfall óánægðra með lífsgæði sín hefur dregist verulega saman frá 1995. Marktækur munur er á ánægju fólks með lífsgæði sín eftir kyni, aldri, menntun, fjölskyldutekjum og stjórnmálaskoðun.

Spurt var:
Almennt séð, hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með tekjur heimilisins?
En hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með lífsgæðin, það er allt sem þú getur keypt og gert?
Mæling á hamingju Íslendinga og hvort Íslendingar gætu hugsað sér að búa annars staðar en á Íslandi eru úr síma– og netkönnun sem gerð var dagana 15. - 29. mars. Svarhlutfall var tæplega 59% og úrtaksstærð 3.134 einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri af öllu landinu. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.
Allir Þjóðarpúlsar