Traust til stofnana og embætta minnkar verulega
03.03.2009Gallup hefur kannað traust almennings til nokkurra stofnana og embætta frá árinu 1993. Að þessu sinni var spurt um traust til tólf stofnana og embætta. Almennt hefur traust til stofnana minnkað verulega frá síðustu mælingu sem gerð var í febrúar á síðasta ári. Traust hefur einungis aukist til tveggja stofnana.
Sem fyrr bera Íslendingar mest traust til Háskóla Íslands en 80% landsmanna bera mikið traust til hans. Þrátt fyrir það hefur hlutfall þeirra sem bera mikið traust til háskólans minnkað um 10 prósentustig frá síðustu mælingu.
Traust til lögreglunnar stendur nánast í stað á milli ára en 79% landsmanna bera mikið traust lögreglunnar.
Traust til heilbrigðiskerfisins eykst um þrjú prósentustig á milli ára og mælist nú 71%.
Dregið hefur úr trausti til umboðsmanns Alþingis en rúmlega helmingur þjóðarinnar ber mikið traust til hans nú á móti 62% í fyrra.
Traust þjóðarinnar til ríkissáttasemjara hefur einnig dalað nokkuð og mælist hlutfall þeirra sem bera mikið traust til hans nú 48%.
Það sama má segja um Þjóðkirkjuna, nú segjast 41% landsmanna bera mikið traust til hennar en sambærilegt hlutfall var 52% í fyrra.
Þrír af hverjum tíu bera mikið traust til dómskerfisins sem er nokkur lækkun frá síðustu mælingu.
Þrátt fyrir að aðeins 18% þjóðarinnar beri mikið traust til borgarstjórnar Reykjavíkur hefur hlutfall þeirra tvöfaldast á milli ára.
Athygli vekur að einungis 13% þjóðarinnar bera mikið traust til Alþingis sem er 29 prósentustiga lækkun frá síðustu mælingu.
Nú var spurt í fyrsta skipti um traust til Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands. Einungis 11% landsmanna bera mikið traust til Seðlabankans og enn færri til Fjármálaeftirlitsins eða 5%.
Bankakerfið vermir neðsta sætið að þessu sinni en einungis 4% Íslendinga segjast bera mikið traust til þess.
Það er veruleg lækkun frá síðustu mælingu og er minnsta traust sem mælst hefur í Þjóðarpúlsi Gallup.
Spurt var:
Hversu mikið eða lítið traust berð þú til ...? (Alþingis, dómskerfisins, Háskóla Íslands, heilbrigðiskerfisins, ríkissáttasemjara, lögreglunnar, umboðsmanns Alþingis, þjóðkirkjunnar, bankakerfisins, borgarstjórnar Reykjavíkur, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans).
Röð stofnana og embætta birtist í tilviljunarkenndri röð.