Þjóðarpúlsinn

Aukið fylgi stjórnarflokkanna

03.03.2009


Helstu breytingar á fylgi flokkanna síðari hluta febrúarmánaðar í samanburði við fyrri hluta mánaðarins eru að stjórnarflokkarnir auka lítillega fylgi sitt á kostnað Framsóknarflokksins. Samfylkingin eykur þannig fylgi sitt um þrjú prósentustig og mælist með 31% fylgi. Vinstrihreyfingingrænt framboð eykur fylgið um eitt prósentustig og mælist með stuðning fjórðungs kjósenda. Á hinn bóginn minnkar fylgi Framsóknarflokksins um tvö prósentustig seinni hluta febrúarmánaðar og mælist flokkurinn nú með 13% fylgi. Fylgi Sjálfstæðisflokksins stendur í stað, en 26% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar fram nú. Fylgi Frjálslynda flokksins mælist um 3% og Íslandshreyfingin - lifandi land mælist með tæplega 2% fylgi.
Næstum tveir af hverjum þremur styðja núverandi ríkisstjórn (65%) og eykst stuðningurinn lítillega síðari hluta febrúar mánaðar.
Ríflega 16% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rúmlega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.

 
Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?

 

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru annars vegar eru úr netkönnun og hins vegar úr símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 16. – 24. febrúar. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Heildarúrtaksstærð var 2.161 manns 18 ára og eldri. Svarhlutfall var rúmlega 63%. Vikmörk eru 0,5-2,9%. Mæling á trausti til stofnana og ánægju með ráðherra og forseta Íslands eru úr netkönnun sem gerð var dagana 11. - 25. febrúar. Svarhlutfall var rösklega 63%, úrtaksstærð 2.351 einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri af öllu landinu úr Viðhorfahópi Capacent Gallup. .
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.


 

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share