Þjóðarpúlsinn

Ánægja með störf ráðherra

03.03.2009

Gallup lék forvitni á að vita ánægju með störf ráðherra nýrrar ríkisstjórnar sem tók til starfa um síðustu mánaðarmót. Af ráðherrum ríkisstjórnarinnar ríkir mest ánægja með störf Jóhönnu Sigurðardóttur líkt og í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Alls sögðust 65% þjóðarinnar vera ánægð með störf hennar. Tæplega sex af hverjum tíu voru ánægðir með störf Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Helmingur landsmanna er ánægður með störf Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra líkt og með störf Rögnu Árnadóttur, dómsmálaráðherra. Naumlega 45% eru ánægð með störf Steingríms J. Sigfússonar, fjármála–, sjávarútvegs– og landbúnaðarráðherra og tæp 40% eru ánægð með störf Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra. Minnst ánægja ríkir með störf Kolbrúnar Halldórsdóttur, umhverfisráðherra en 14% landsmanna eru ánægð með störf hennar.

 


 
Spurt var:
Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með störf Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra? Eins var spurt um alla ráðherra í ríkisstjórninni og röð þeirra birtist í tilviljunarkenndri röð.

 

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru annars vegar eru úr netkönnun og hins vegar úr símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 16. – 24. febrúar. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Heildarúrtaksstærð var 2.161 manns 18 ára og eldri. Svarhlutfall var rúmlega 63%. Vikmörk eru 0,5-2,9%. Mæling á trausti til stofnana og ánægju með ráðherra og forseta Íslands eru úr netkönnun sem gerð var dagana 11. - 25. febrúar. Svarhlutfall var rösklega 63%, úrtaksstærð 2.351 einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri af öllu landinu úr Viðhorfahópi Capacent Gallup. .
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share