Þjóðarpúlsinn

Mannréttindamál mikilvæg í hugum fólks

06.08.2008

Í ljós kom að mikilvægasta atriðið af þeim sem spurt var um þótti vera mannréttindi, en tæplega 69% töldu mannréttindi verð mikilla fórna og áhættu en aðeins ríflega 4% töldu mannréttindi ekki verð fórna og áhættu. Heimsfriður, frelsi einstaklingsins og baráttan við fátækt eru síðan þau málefni sem koma næst. Tvö atriði skera sig síðan úr sem þau atriði sem eru minnst verð fórna en það eru eigin trúarbrögð sem liðlega 58% segja ekki verð fórna og áhættu og sameining Evrópu sem ríflega 57% segja ekki verða fórna og áhættu.


Þegar niðurstöður eru greindar eftir kyni kemur í ljós að konur eru líklegri en karlar til að meta málefni verð þess að færa miklar fórnir og taka áhættu fyrir. Munurinn er mestur þegar kemur að jafnrétti kynjanna en 57% kvenna telja það þess vert að færa miklar fórnir og taka áhættu fyrir en 39% karla eru sömu skoðunar. Töluvert hærra hlutfall kvenna en karla telur að baráttan gegn kynþáttafordómum sé fórna og áhættu verð en 14% karla telur að baráttan gegn kynþáttafordómum sé ekki fórna eða áhættu verð samanborið við 5% kvenna. 

 

Spurt var:
Hver eftirtalinna atriða eru að þínu mati það mikilvæg að þau séu verð þess að taka áhættu og færa fórnir fyrir?

 

 

Niðurstöður úr spurningum um viðhorf til útlendinga og hvort atriði séu þess verð að taka áhættu og færa fórnir fyrir eru úr netkönnun sem gerð var dagana 11. - 29. júlí. Svarhlutfall var rúmlega 65%, úrtaksstærð 2.102 einstaklingar af öllu landinu í viðhorfahópi Capacent Gallup. Í báðum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18-75 ára.

 

Allir Þjóðarpúlsar
Print Bookmark and Share