Fréttir

Viðhorf til starfa borgarstjóra

07.09.2010

Stór hluti Íslendinga er hvorki ánægður né óánægður með störf Jóns Gnarr borgarstjóra í Reykjavík, eða ríflega 42% aðspurðra. Svipað hlutfall, eða rúmlega 41%, er  ánægt með störf hans. Þar af eru rúmlega 18% mjög ánægð en 23% frekar ánægð. Tæplega 17% eru óánægð með störf borgarstjóra, þar af tæplega 8% mjög óánægð en nær 9% frekar óánægð.

Munur er milli kynja sem kemur þannig fram að fleiri karlar en konur eru óánægðir með störf Jóns á meðan fleiri konur eru hlutlausar.

Mikill munur er á viðhorfi til borgarstjórans eftir aldri og minnkar ánægja með störf hans jafnt og þétt með auknum aldri. Þannig er yfir 65% fólks yngra en 30 ára ánægt með störf hans á meðan rúmlega 19% fólks 60 ára og eldra er ánægt.

Munur er milli íbúa höfuðborgarsvæðisins annars vegar og landsbyggðarinnar hinsvegar sem kemur þannig fram að fleiri íbúar höfuðborgarsvæðisins eru óánægðir með störf hans á meðan fleiri íbúar landsbyggðarinnar eru hvorki ánægðir né óánægðir með þau. Ekki er marktækur munur á viðhorfum fólks eftir menntun eða tekjum.

Meiri ánægja er með störf borgarstjórans  meðal þeirra sem styðja ríkisstjórnina en þeirra sem styðja hana ekki. Nær 53% þeirra sem styðja ríkisstjórnina eru þannig ánægð með störf hans á móti 32% þeirra sem styðja ekki ríkisstjórnina.

 




Að sama skapi er mikill munur á ánægju með störf borgarstjórans eftir því hvað fólk segist myndu kjósa ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag eins og sjá má í meðfylgjandi greiningu. Þannig eru þeir sem myndu kjósa Besta flokkinn langánægðastir með störf Jóns Gnarr en þeir sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn óánægðastir. 

Spurt var:

Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með störf Jóns Gnarr, borgarstjórans í Reykjavík?

 

 

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net– og símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 28. júlí - 29. ágúst 20 10. Heildarúrtaksstærð var 6.324 einstaklingar af öllu landinu og var svarhlutfall 63,3%. Vikmörk eru 0,5- 1,7%. Mæling á ferðalögum í sumar og viðhorfi til borgarstjórans í Reykjavík eru úr netkönnun sem gerð var dagana 12. - 25. júlí. Svarhlutfall var 66,0%, úrtaksstærð 2. 358 einstaklingar. Í öllum úrtökum var fólk á aldrinum 18 ára eða eldra af öllu landinu. Í netkönnunum voru þeir valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en í símakönnunum úr þjóðskrá.

Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.

Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is

Umsjón með útgáfu: Jón Karl Árnason og Sigrún Drífa Jónsdóttir

Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

 

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share