Fréttir

Litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða

07.09.2010

Heilt yfir eru litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða. Helstu breytingar eru þær að Vinstrihreyfingin - grænt framboð bætir við sig um tveimur prósentustigum á milli mánaða og segjast tæplega 21% myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Þetta er svipað hlutfall og sagðist ætla að kjósa flokkinn í júní. Að sama skapi fækkar þeim um tvö prósentustig sem segjast ætla að kjósa aðra flokka en VG, Sjálfstæðisflokk, Samfylkingu og Framsóknarflokk en um 8% segjast ætla að kjósa aðra flokka. Þar af ætla liðlega 3% að kjósa Hreyfinguna og tæplega 2% að kjósa annars vegar Borgarahreyfinguna og hins vegar Besta flokkinn. Næstum 35% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, um fjórðungur segist myndi kjósa Samfylkinguna og 12% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Þetta er óveruleg breyting á fylgi flokkanna milli mánaða.

Naumlega 13% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rösklega 16% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.

Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um tvö prósentustig milli mánaða og mælist stuðningur við hana nú 40%.




Spurt var:

 

Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?

En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?

Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?

Styður þú ríkisstjórnina?

 

 

 

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net– og símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 28. júlí - 29. ágúst 20 10. Heildarúrtaksstærð var 6.324 einstaklingar af öllu landinu og var svarhlutfall 63,3%. Vikmörk eru 0,5- 1,7%. Mæling á ferðalögum í sumar og viðhorfi til borgarstjórans í Reykjavík eru úr netkönnun sem gerð var dagana 12. - 25. júlí. Svarhlutfall var 66,0%, úrtaksstærð 2. 358 einstaklingar. Í öllum úrtökum var fólk á aldrinum 18 ára eða eldra af öllu landinu. Í netkönnunum voru þeir valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en í símakönnunum úr þjóðskrá.

Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.

Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is

Umsjón með útgáfu: Jón Karl Árnason og Sigrún Drífa Jónsdóttir

Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

 

 

 

 

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share