Ferðalög Íslendinga í sumar
06.09.2010
Utanlandsferðir
Einn af hverjum þremur aðspurðum Íslendingum ferðaðist til útlanda í sumar. Utanlandsferðir eru tíðari meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins, en 36% aðspurðra á höfuðborgarsvæðinu ferðuðust til útlanda í sumar á móti 27% íbúa landsbyggðarinnar.
Fleiri ferðuðust til útlanda í sumar meðal þeirra sem hafa lokið háskólaprófi en annarra, eða tæplega 42% á meðan innan við 30% þeirra sem hafa lokið grunn- eða framhaldsskólaprófi fóru utan.
Að sama skapi fóru fleiri út fyrir landsteinana meðal þeirra sem hafa hærri fjölskyldutekjur en meðal þeirra sem lægri tekjur hafa. Ferðalög innanlands Mun fleiri ferðuðust innanlands í sumar en til útlanda, eða tæplega 83% aðspurðra. Það eru um 7 prósentustigum fleiri en sumarið 2006. Fleiri ferðuðust innanlands meðal þeirra sem meiri menntun hafa en minni. Þannig höfðu tæplega 69% fólks með grunnskólapróf ferðast innanlands í sumar, 81% fólks með framhaldsskólapróf og tæp 89% fólks með háskólapróf. Að sama skapi ferðuðust þeir minnst innanlands sem lægstar fjölskyldutekjur hafa en meira sem hærri tekjur hafa. Gisting Á myndinni hér fyrir neðan má sjá nánari greiningu á fjölda gistinátta. Algengast var að fólk gisti í orlofshúsi/sumarbústað á ferðalögum sínum innanlands í sumar en rúmlega 49% gerðu það, rúmlega 40% gistu einhvern tímann hjá fjölskyldu eða vinum og tæp 27% í tjaldi. Rúm 14% gistu einhvern tímann í fellihýsi, tæp 13% á hóteli og 11% í tjaldvagni. Færri nýttu sér aðra gistimöguleika. Þegar þessarar sömu spurningar var spurt árið 2006 höfðu flestir gist í tjaldi eða um 27%, næstflestir í heimahúsi eða 26% og loks 24% í orlofshúsi/sumarbústað. Þegar þessarar sömu spurningar var spurt árið 2006 höfðu flestir gist í tjaldi eða um 27%, næstflestir í heimahúsi eða 26% og loks 24% í orlofshúsi/sumarbústað. Spurt var: Ferðaðist þú eitthvað til útlanda í sumar? Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net– og símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 28. júlí - 29. ágúst 20 10. Heildarúrtaksstærð var 6.324 einstaklingar af öllu landinu og var svarhlutfall 63,3%. Vikmörk eru 0,5- 1,7%. Mæling á ferðalögum í sumar og viðhorfi til borgarstjórans í Reykjavík eru úr netkönnun sem gerð var dagana 12. - 25. júlí. Svarhlutfall var 66,0%, úrtaksstærð 2. 358 einstaklingar. Í öllum úrtökum var fólk á aldrinum 18 ára eða eldra af öllu landinu. Í netkönnunum voru þeir valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en í símakönnunum úr þjóðskrá. Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent. Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: sigrun.drifa.jonsdottir@capacent.is Umsjón með útgáfu: Jón Karl Árnason og Sigrún Drífa Jónsdóttir Ábyrgðarmaður: Vilborg Helga Harðardóttir © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn. 

Þeir sem ferðuðust til útlanda í sumar gistu hver samtals um 14 nætur erlendis að meðaltali. Karlar gistu að meðaltali fleiri nætur erlendis í sumar en konur, eða 16 nætur hver á móti 13 nóttum hjá konum.
Þeir sem ferðuðust innanlands gistu hver samtals tæplega 10 nætur að meðaltali á ferðalögum sínum.

Hversu margar nætur gistir þú samtals í útlöndum í sumar?
Ferðaðist þú eitthvað innanlands í sumar?
Hversu margar nætur gistir þú samtals á ferðalögum þínum innanlands í sumar?
Hvar gistir þú á ferðalögum þínum innanlands í sumar? (nefna mátti fleiri en einn svarmöguleika)
Allar fréttir