Fréttir

Mikil aukning atvinnuauglýsinga

18.08.2010

Veruleg aukning hefur orðið á birtingu atvinnuauglýsinga í dagblöðum það sem af er þessu ári, ef miðað er við síðasta ár, samkvæmt tölum Capacent.

Á árinu 2009 voru birtar samtals 3.480 atvinnuauglýsingar í dagblöðunum en á fyrstu sjö mánuðum þessa árs er fjöldi atvinnuauglýsinga 2.457. Það samsvarar um 70% af heildarauglýsingafjölda síðasta árs eða sem nemur 21% aukningu miðað við sama tíma í fyrra.

“Við höfum orðið greinilega vör við það á þessu ári að atvinnumarkaðurinn hefur verið að taka við sér og á það við um vinnumarkaðinn í heild. Þetta er vonandi til marks um aukna bjartsýni í atvinnulífinu,” segir Gunnar Haugen, framkvæmdastjóri Capacent Ráðninga.

Capacent Rannsóknir mæla í hverjum mánuði með nákvæmum hætti allar auglýsingar sem birtast í dagblöðum, tímaritum og sjónvarpi. Niðurstaðan er safn upplýsinga um hve mikið einstök fyrirtæki í mismunandi greinum auglýsa, hvar þau auglýsa og hvenær.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share