Viðhorf til Evrópusambandsaðildar Íslands
06.07.2010Nýlega samþykkti leiðtogaráð Evrópusambandsins að hefja viðræður við Ísland um aðild að Evrópusambandinu. Gallup spurði almenning hversu hlynntur eða andvígur hann væri aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í ljós kom að meirihluti er andvígur aðild að Evrópusambandinu eða um 60%. Tæplega 26% eru hlynnt aðild en rúm 14% eru hvorki hlynnt né andvíg. Rúmlega 7% taka ekki afstöðu og 2% neita að gefa hana upp.
Karlar eru almennt hlynntari aðild en konur en ríflega 29% karla eru hlynnt aðild á móti 22% kvenna. Athygli vekur að yngstu og elstu aldurshóparnir eru andvígastir aðild að Evrópusambandinu en um 63% 18-29 ára eru andvíg aðild og það sama á við um aldurshópinn 60 ára og eldri. Stuðningur við aðild eykst með aukinni menntun en 34% þeirra sem lokið hafa háskólaprófi eru hlynnt aðild en fimmtungur sem lokið hefur grunnskólaprófi. Þegar niðurstöður eru greindar eftir því hvað fólk myndi kjósa ef gengið væri til alþingiskosninga í dag kemur í ljós að kjósendur Samfylkingarinnar eru hlynntastir Evrópusambandsaðild en 68% þeirra segjast hlynnt aðild. Naumlega 19% kjósenda Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs eru hlynnt aðild, tæp 14%
kjósenda Framsóknarflokksins og 13%
kjósenda Sjálfstæðisflokksins.
Spurt var:
- Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aðild Íslands að Evrópusambandinu ESB?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 28. maí - 30. júní 2010. Heildarúrtaksstærð var 5.596 einstaklingar af öllu landinu og var svarhlutfall 68,7%. Vikmörk eru 0,4-1,7%. Mæling á viðhorfi til Evrópusambandsins og atriða er lúta að aðild að því eru úr netkönnun sem gerð var dagana 10. - 24. júní. Svarhlutfall var 67,6%, úrtaksstærð 2.311 einstaklingar. Í öllum úrtökum var fólk á aldrinum 18 ára eða eldra af öllu landinu, valið af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.