Fréttir

Þekking og upplýsingagjöf um kosti og galla Evrópusambandsaðildar

06.07.2010

Þegar fólk var spurt hversu vel eða illa því fyndist það þekkja kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið svöruðu 45% að þau þekktu þá vel. Um 29% töldu sig hvorki þekkja kosti og galla aðildar vel né illa en 26% illa. Konum finnst þær þekkja kosti og galla aðildar verr en körlum og eftir því sem fólk er eldra því betur þykir því það þekkja kosti og galla aðildar. Hlutfallslega fleiri íbúar landsbyggðarinnar en höfuðborgarsvæðisins töldu sig þekkja kosti og galla aðildar vel. Athygli vekur að kjósendur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboð telja sig þekkja kosti og galla aðildar töluvert verr en kjósendur annarra flokka. Þegar niðurstöður eru greindar eftir því hversu hlynnt eða andvígt fólk er aðild kemur í ljós að þeir sem segjast hvorki hlynntir né andvígir skera sig nokkuð úr að því leyti að þeir telja sig þekkja kosti og galla aðildar miklu verr en þeir sem eru annað hvort hlynntir eða andvígir.





Þegar fólk var spurt hvaða fimm aðilum það treysti best til að upplýsa eða fræða það um kosti og galla þess að Ísland gangi í Evrópusambandið nefna langflestir fræðimenn eða 79%. Næst á eftir koma hagsmunasamtök launþega en 44% aðspurðra nefndu þau meðal þeirra fimm aðila sem þeir treystu best. Um 39% nefndu innlenda fjölmiðla og 38% nefndu hagsmunasamtök sem eru mótfallin aðild að ESB. Um 36% nefndu erlenda fjölmiðla og 34% hagsmunasamtök atvinnurekenda. Einungis 18% nefndu hins vegar stjórnmálamenn meðal þeirra aðila sem þau treysta best til að fræða sig um kosti og galla aðildar að ESB.






Fólk var jafnframt spurt hvernig það vildi helst fá upplýsingar um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið. Flestir nefna heimildaþætti í sjónvarpi eða útvarpi eða 75%. Næst flestir nefna umræðuþætti í sjónvarpi eða útvarpi eða 66%. Um 43% nefna efni á Internetinu og 35% upplýsingarit/bæklinga frá stjórnvöldum.






Spurt var:

  • Hversu vel eða illa finnst þér þú þekkja kosti og galla þess að Ísland gangi í Evrópusambandið?
  • Hverjum fimm af eftirtöldum aðilum myndir þú treysta best til að upplýsa eða fræða þig um kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið? Merktu 1 við þá sem þú treystir best, 2 við þá sem þú treystir næst best o.s.frv.
  • Með hvaða hætti/á hvaða formi vildir þú helst fá upplýsingar um kosti og galla þess að ganga í ESB?


Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 28. maí - 30. júní 2010. Heildarúrtaksstærð var 5.596 einstaklingar af öllu landinu og var svarhlutfall 68,7%. Vikmörk eru 0,4-1,7%. Mæling á viðhorfi til Evrópusambandsins og atriða er lúta að aðild að því eru úr netkönnun sem gerð var dagana 10. - 24. júní. Svarhlutfall var 67,6%, úrtaksstærð 2.311 einstaklingar. Í öllum úrtökum var fólk á aldrinum 18 ára eða eldra af öllu landinu, valið af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share