Capacent Glacier verður Capacent Corporate Finance
09.03.2010Sigurður Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Capacent Corporate Finance, áður Capacent Glacier, en hann hefur starfað hjá Capacent við rekstrar- og fjármálaráðgjöf frá árinu 2001. Hann tekur við starfinu af Magnúsi Bjarnasyni, sem hefur hafið störf hjá Landsvirkjun.
Samhliða þessum breytingum hafa orðið nokkrar breytingar á eignarhaldi fyrirtækisins. Capacent á Íslandi hefur ásamt hópi starfsmanna Capacent Corporate Finance, þeim Sigurði Harðarsyni, Brynju Þorbjörnsdóttur, Hermanni Baldurssyni, Sigurði Jóni Björnssyni og Sturlu Geirssyni, keypt alla hluti í fyrirtækinu.
Í framhaldi þessara breytinga hyggst félagið leggja aukna áherslu á íslenska markaðinn en alþjóðlegur hluti félagsins gengur inn í Glacier í New York. Capacent mun áfram eiga samstarf um alþjóðleg verkefni við Glacier en báðir aðilar telja farsælt að skerpa áherslur með þessum hætti.
Sigurður Harðarson, framkvæmdastjóri Capacent Corporate Finance : „Rekstur félagsins hefur gengið vel og félagið skilaði hagnaði á síðasta ári. Capacent hefur þegar skipað sér í röð fremstu fyrirtækja í fjárfestingaráðgjöf á Íslandi. Engar breytingar verða á þessu. Við teljum mikil sóknarfæri framundan í fjárfestingar- og umbreytingarverkefnum.“
Capacent Corporate Finance var stofnað í mars 2009. Félagið hefur starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki frá Fjármálaeftirlitinu og hefur komið að margvíslegum verkefnum á sviði fjárfestingaráðgjafar, verðmatsvinnu og umbreytingu fyrirtækja.