Þjóðaratkvæðagreiðsla
05.03.2010Stefnt er að því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram þann 6. mars nk. um lög um ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinga. Gallup hefur mælt afstöðu fólks til þess hvað það myndi kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni allt frá synjun forseta Íslands þann 5. janúar sl. Hlutfall þeirra sem segjast myndu kjósa á móti lögunum hefur aukist jafnt og þétt eftir því sem nær dregur þjóðaratkvæðagreiðslunni. Á tímabilinu 10. - 28. febrúar sögðust 73,5% myndu kjósa á móti lögunum, 18,8% með lögunum en 7,7% myndu skila auðu.

- Hvernig myndir þú kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um lög um ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinga?
Mæling á hvernig kosið yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave eru úr netkönnun sem gerð var dagana 27. janúar - 28. febrúar. Svarhlutfall var 71,0%, úrtaksstærð 5.061 einstaklingur. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18 ára eða eldri af öllu landinu. Í netkönnunum voru þeir valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en í símakönnunum af handahófi úr þjóðskrá.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.
Allar fréttir