Fréttir

Alþingi nýtur enn lítils trausts

05.03.2010






Gallup hefur kannað traust almennings til nokkurra stofnana og embætta frá árinu 1993. Að þessu sinni var spurt um traust til fjórtán stofnana og embætta. Í síðustu mælingu sem gerð var í febrúar 2009 hafði traust til stofnana minnkað verulega frá því sem var fyrir bankahrun.




Helstu breytingarnar eru að lögreglan mælist nú með mest traust meðal þjóðarinnar af þeim stofnunum og embættum sem mældar voru. Rúmlega 81% segist nú bera mikið traust til lögreglunnar. Háskóli Íslands sem lengst af hefur verið sú stofnun sem notið hefur mests trausts kemur þar á eftir en 76% bera mikið traust til hans. Traust til heilbrigðiskerfisins stendur nánast í stað á milli ára og mælist nú 70%. Ríflega 57% bera mikið traust til embættis sérstaks saksóknara.
Traust til umboðsmanns Alþingis dalar lítillega en tæplega helmingur þjóðarinnar ber mikið traust til hans. Traust til þjóðkirkjunnar hefur lítið sem ekkert breyst frá því í fyrra en tveir af hverjum fimm bera mikið traust til hennar. Traust til embættis ríkissáttasemjara heldur áfram að minnka en 38% bera mikið traust til þess. Rúmlega 31% ber mikið traust til dómskerfisins sem er lítil breyting frá því í fyrra. Traust til ríkissaksóknara mælist litlu minna en 29% landsmanna bera mikið traust til hans. Traust til borgarstjórnar Reykjavíkur eykst um fjögur prósentustig frá því í fyrra en 22% bera mikið traust til hennar. Traust til Seðlabankans eykst milli mælinga en 15% landsmanna bera mikið traust til hans. Þrátt fyrir að alþingis-kosningar hafi farið fram síðasta vor hefur traust til Alþingis ekki aukist frá því fyrir ári síðan. Líkt og þá segjast einungis 13% þjóðarinnar bera mikið traust til Alþingis. Einungis 11% bera mikið traust til Fjármálaeftirlitsins en sambærilegt hlutfall í fyrra var rúmlega tvöfalt lægra. Eins og í fyrra nýtur bankakerfið minnsts trausts að þessu sinni en einungis 5% Íslendinga segjast bera mikið traust til þess.


Spurt var:
  • Hversu mikið eða lítið traust berð þú til ...?
Röð stofnana og embætta birtist í tilviljunarkenndri röð.


Mæling á trausti til stofnana eru úr net– og símakönnun sem gerð var dagana 3. - 22. febrúar. Svarhlutfall var 66,2%, úrtaksstærð 2.988 einstaklingar. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18 ára eða eldri af öllu landinu. Í netkönnunum voru þeir valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup en í símakönnunum af handahófi úr þjóðskrá.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.




Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share