Íslenska ánægjuvogin 2009
23.02.2010Í dag, 23. febrúar 2010, voru kynntar niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar en þetta er ellefta árið sem ánægja viðskipta¬vina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni voru 25 fyrirtæki í 5 atvinnugreinum mæld. Niðurstöður byggja á svörum rúmlega 6000 manns eða um 250 viðskiptavina hvers fyrirtækis.
Hæstu einkunn allra fyrirtækja og raunar hæstu einkunn sem mælst hefur í Íslensku ánægjuvoginni frá upphafi hlaut Fjarðarkaup, 91,3 af 100 mögulegum. Í fyrsta sæti í flokki banka og sparisjóða var Spari¬sjóðurinn með einkunnina 78,6. Í flokki tryggingafélaga var Vörður í fyrsta sæti með 68,4. HS orka var í fyrsta sæti raforkusala með 69,8. Nova var í fyrsta sæti í flokki farsímafyrirtækja með einkunnina 79,4.
|
Bankar og sparisjóðir |
Ánægjuvog |
|
Farsímafyrirtæki |
Ánægjuvog |
|
Sparisjóðurinn |
78,6 |
|
Nova |
79,4 |
|
BYR sparisjóður |
69,9 |
|
Vodafone |
66,0 |
|
Íslandsbanki |
54,5 |
|
Tal |
65,6 |
|
Landsbankinn |
50,1 |
|
Síminn |
63,0 |
|
Arion banki |
49,6 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Tryggingafélög |
|
|
Smásöluverslun |
|
|
Vörður |
68,4 |
|
Fjarðarkaup |
91,3 |
|
TM |
68,0 |
|
ÁTVR |
73,1 |
|
VÍS |
63,7 |
|
Nettó |
69,2 |
|
Sjóvá |
59,2 |
|
Krónan |
65,7 |
|
|
|
|
BYKO |
64,6 |
|
Raforkusölur |
|
|
Hagkaup |
62,8 |
|
HS orka |
69,8 |
|
Bónus |
60,5 |
|
Fallorka |
68,8 |
|
Húsasmiðjan |
57,7 |
|
Orkuveita Reykjavíkur |
67,0 |
|
|
|
|
Orkusalan |
56,3 |
|
|
|
Nánari upplýsingar veita Davíð Lúðvíksson hjá SI í síma 5910114/8246114, netfang david@si.is og Guðbjörg Andrea Jónsdóttir hjá Capacent Gallup í síma 5401033/8601033, netfang gaj@capacent.is.
Upplýsingar um Íslensku ánægjuvogina má finna á: http://stjornvisi.is/Islenskaanaegjuvogin/.
Allar fréttir