Viðhorf til einkavæðingar
05.02.2010Á heildina litið hefur stuðningur við einkavæðingu aukist lítillega frá því í fyrra en er þó ennþá töluvert minni en árið 2007.

Tæplega 29% eru nú almennt hlynnt einkavæðingu ríkisstofnana eða fyrirtækja í eigu ríkisins. Stuðningur við einkavæðingu er sem fyrr mestur meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins en ríflega helmingur kjósenda flokksins er hlynntur einkavæðingu ríkisstofnana eða –fyrirtækja. Kjósendur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs eru andvígastir einkavæðingu en einungis 7% þeirra eru almennt hlynnt einkavæðingu. Karlar eru hlynntari einkavæðingu en konur, en 35% þeirra eru hlynnt einkavæðingu samanborið við 22% kvenna.

Hlutfallslega flestir eru hlynntir einkavæðingu bankanna eða ríflega 38%. Nokkuð fleiri eða 42% eru þó andvíg. Ríflega 17% eru hlynnt einkavæðingu í menntakerfinu en 65% andvíg. Rúm 17% eru hlynnt einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu en 70% andvíg. Töluvert fleiri eru hlynntir byggingu einkasjúkrahúsa eða tæplega þriðjungur. Um 15% eru hlynnt einkavæðingu orkufyrirtækja en 71% andvígt. Einungis 12% eru hlynnt einkavæðingu Landsvirkjunar en 75% eru andvíg.
Spurt var:
- Ertu almennt hlynnt(ur) eða andvíg(ur) einkavæðingu ríkisstofnana eða fyrirtækja í eigu ríkisins?
- Ertu almennt hlynnt(ur) eða andvíg(ur) einkavæðingu í menntakerfinu?
- Eins var spurt um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu, einkavæðingu bankanna, einkavæðingu orkufyrirtækja og einkavæðingu Landsvirkjunar. Spurt var um atriðin fimm í tilviljunarkenndri röð.
- Ertu almennt hlynnt(ur) eða andvíg(ur) byggingu einkasjúkrahúsa?