Fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn eykur fylgi sitt í borginni

05.02.2010

Nú þegar styttist í kosningar til borgarstjórnar er athyglisvert að skoða stöðu flokkanna í borginni. Rúmlega 41% segist myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag sem er tveimur prósentustigum meira en í nóvember. Samfylkingin fengi um þriðjung atkvæða og minnkar fylgið um eitt prósentustig frá því í nóvember. Um 19% myndu kjósa Vinstrihreyfinguna - grænt framboð sem er tveimur prósentustigum minna en í nóvember. Rösklega 5% myndu kjósa Framsóknarflokkinn og um 2% nefna aðra flokka.








Þegar fylgi flokkanna í borginni er skoðað eftir kyni kemur í ljós að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sækja meira fylgi til karla en kvenna. Á hinn bóginn sækja Samfylkingin og Vinstrihreyfingin - grænt framboð meira fylgi til kvenna en karla.
Ríflega 18% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef borgarstjórnarkosningar færu fram í dag.






Ef borgarfulltrúum er skipt milli flokka út frá niðurstöðum könnunarinnar fengi Sjálfstæðisflokkurinn 7 borgarfulltrúa, Samfylkingin 5 borgarfulltrúa og Vinstrihreyfingin - grænt framboð 3 borgarfulltrúa. Sjöundi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins stendur þó tæpast og þarf afar litlar breytingar á fylginu til að Framsókn nái inn manni.









Spurt var
:
  • Ef kosið yrði í dag til borgarstjórnar hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokk eða lista er líklegast að þú myndir kjósa?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?



Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu og í Reykjavík eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 5. til 26. janúar 2010. Heildarúrtaksstærð á landsvísu var 6.920 af öllu landinu en þar af voru Reykvíkingar 2.576 og svarhlutfall var 71,5%. Vikmörk á landsvísu eru 0,6-1,5%.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share