Jólainnkaupin 2009
05.02.2010Rúm 6% keyptu álíka mikið innanlands og erlendis.

Helmingur þjóðarinnar telur sig hafa eytt undir 100.000 kr. í jólahaldið um nýliðin jól, þriðjungur telur sig hafa eytt á bilinu 100.000 til 199.999 kr.
Um 17% töldu sig hafa eytt meira.

Þegar svarendur voru beðnir um að meta eyðslu í jólahald nýliðinna jóla í samanburði við jólin 2008 kom í ljós að 12% töldu sig hafa eytt meira 2009 en 2008. Tæplega 59% töldu eyðsluna hafa verið svipaða nú og fyrir jólin 2008. Hins vegar töldu nær þrír af hverjum tíu svarendum sig hafa eytt minna árið 2009 en 2008.

Spurt var:
- Hvort keyptir þú megnið af jólagjöfunum innanlands eða erlendis fyrir jólin?
- Hvað telur þú þig hafa eytt miklu fé í jólahaldið í heild sinni um nýliðin jól?
- Telur þú þig hafa eytt meira eða minna fé í jólahald nýliðinna jóla en í jólahald ársins 2008?