Ákvörðun forseta Íslands
05.02.2010Stuðningur við ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar um að staðfesta ekki Icesave lögin jókst jafnt og þétt fyrstu vikuna eftir ákvörðunina en hefur haldist nokkuð stöðugur frá því um miðjan janúarmánuð.

Í könnun frá 20.-26. janúar var 61% sammála ákvörðun forsetans, 30% ósammála og 9% hvorki sammála né ósammála. Dagana 20.-26. janúar töldu álíka margir ákvörðun forsetans hafa góð og slæm áhrif á þjóðarhag. Um 38% töldu ákvörðunina hafa góð áhrif á þjóðarhag á meðan 36% töldu hana hafa slæm áhrif.

Frá 12. janúar segir mikill meirihluti landsmanna eða 66% að hann myndi kjósa á móti lögunum, 30% með þeim og 4% að þau myndu skila auðu.

Spurt var:
- Ertu sammála eða ósammála ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki lög um ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinga sem Alþingi samþykkti 30. desember 2009?
- Hversu góð eða slæm áhrif telur þú að það hafi á þjóðarhag að forseti Íslands hafi ekki staðfest lög um ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinga?
- Hvernig myndir þú kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um lög um ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinga?
Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu og í Reykjavík eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 5. til 26. janúar 2010. Heildarúrtaksstærð á landsvísu var 6.920 af öllu landinu en þar af voru Reykvíkingar 2.576 og svarhlutfall var 71,5%. Vikmörk á landsvísu eru 0,6-1,5%. Mæling á viðhorfi til einkavæðingar og jólainnkaupa eru úr netkönnun sem gerð var dagana 13. - 26. janúar. Svarhlutfall var 73,1%, úrtaksstærð 2.345 einstaklingar. Mæling á viðhorfi til ákvörðunar forseta Íslands eru úr netkönnun sem gerð var dagana 5. - 26. janúar. Svarhlutfall var 66,8%, úrtaksstærð 5.600 einstaklingar. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn.