Fréttir

Samfylkingin tapar nokkru fylgi milli mánaða

06.01.2010







Helstu breytingar á fylgi flokkanna milli nóvember og desember 2009 eru þær að fylgi Samfylkingarinnar minnkar um tvö prósentustig milli mánaða og myndu liðlega 24% kjósa flokkinn færu kosningar fram nú. Þetta er minnsta fylgi sem Samfylkingin hefur mælst með síðan í janúar 2009. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi milli mánaða og nýtur flokkurinn nú stuðnings þriðjungs kjósenda. Eins og í síðasta mánuði mælist Vinstrihreyfingin - grænt framboð með 23% fylgi en tæplega 15% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn færu Alþingiskosningar fram í dag. Um fimm prósent segjast myndu kjósa aðra flokka.
Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar lítillega milli nóvember og desember, en stuðningur við stjórnina mælist nú 46%.
Nær 12% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og næstum 14% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.



Spurt var: 

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?



Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 30. nóvember til 28. desember 2009. Svarhlutfall var 70,4%, úrtaksstærð 3.659 manns. Vikmörk eru 0,5-2,1%. Viðhorf til ársins 2010 eru úr netkönnun sem gerð var dagana 18. - 27. nóvember. Svarhlutfall var 69,5%, úrtaksstærð 1.477 einstaklingar. Viðhorf til loftslagsmála eru úr netkönnun sem gerð var dagana 9. - 27. desember. Svarhlutfall var 69,8%, úrtakstærð 2.344 einstaklingar. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn. 
 

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share