Fréttir

Horfur ársins 2010

06.01.2010

Hin árlega könnun Gallup, þar sem spurt er um horfur í nokkrum málaflokkum fyrir komandi ár, var gerð nú undir lok árs. Könnunin er gerð í 33 löndum og má sjá niðurstöður fyrir Ísland á myndunum hér fyrir neðan.







Á heildina litið eru Íslendingar frekar svartsýnir á horfur næsta árs en þó eru þeir ekki eins svartsýnir nú og þeir voru í fyrra á horfur ársins 2009. Um 42% landsmanna telja að persónulegir hagir þeirra verði verri árið 2010 en 2009, tæplega 47% telja að persónulegir hagir þeirra verði svipaðir og einungis 11% telja þeir verði betri.
 






Þrátt fyrir að væntingar til efnahagsástands ársins 2010 séu betri en þær voru fyrir árið 2009 telur ríflega helmingur þjóðarinnar að efnahagsástandið verði verra árið 2010 en árið 2009, 34% telja það verða svipað og 12% betra. 








Um 53% landsmanna telja jafnframt að atvinnuleysi eigi eftir að aukast árið 2010, 29% telja það muni standa í stað frá því sem nú er en 18% að það verði minna. Hlutfall þeirra sem telja að atvinnuleysi eigi eftir að aukast á næsta ári hefur hins vegar lækkað mjög mikið frá síðustu mælingu eða um 40 prósentustig.
 







Um 27% Íslendinga telja að verkföll og átök á vinnumarkaði verði meiri á næsta ári en árið 2009, 57% telja þau verða svipuð og 16% að þau verði minni.
 







Loks telja 36% landsmanna að deilur í alþjóðamálum verði meiri árið 2010 en árið 2009 og er það nokkur lækkun frá síðustu mælingu. Meirihluti Íslendinga telur að alþjóðadeilur muni verða svipaðar og í ár en 6% að þær verði minni.


Ef litið er á niðurstöður fyrir öll löndin má segja að bjartsýni hafi aukist nokkuð. 45% aðspurðra í öllum þátttökulöndunum telja að hagir þeirra verði betra árið 2010 en í ár sem er 18 prósentustiga aukning frá því í lok síðasta árs. Íslendingar skipa sér í flokk með V–Evrópubúum sem eru líkt og áður svartsýnasti hluti heimsins. Þó ber að hafa í huga að aðstæður sem íbúar landanna búa við eru mjög ólíkar.
Þegar einstök lönd eru skoðuð kemur í ljós að íbúar Nýja Sjálands eru bjartsýnastir en 73% þeirra telja að hagir þeirra verði betri árið 2010 en árið 2009. Í öðru sæti koma íbúar Brasilíu en 71% þeirra telja að hagir þeirra verði betri á næsta ári. Þar á eftir koma lönd eins og Ástralía, Rússland og íbúar stærstu borga Kína. Íbúar Króatíu eru svartsýnastir en 57% þeirra telja að hagir þeirra verði verri á næsta ári en þeir voru í ár. Næst á eftir koma Bosnía og Herse-góvína, Serbía, Albanía, Rúmenía og Ísland en í fyrra voru Íslendingar svartsýnastir ásamt Hong Kong.
Á heimsvísu telja 29% að efnahagsástandið verði betra árið 2010 en 2009 en sambærilegt hlutfall í fyrra var 13%. Jafn margir telja þó að efnahagsástandið verði verra eða 29%. Íbúar S/Mið - Ameríku eru bjartsýnastir á horfur í efnahagsmálum en íbúar V-Evrópu og í Austurlöndum/Eyjaálfu svartsýnastir. Einungis 11% íbúa V-Evrópu telja að efnahagsástandið verði betra árið 2010 en það var í ár.
Meirihluti (51%) telur að atvinnuleysi eigi eftir að aukast árið 2010 en 25% telja þó að atvinnuleysi eigi eftir að minnka, nokkuð fleiri en á sama tíma í fyrra. Íbúar V-Evrópu, N-Ameríku og Austurlanda/Eyjaálfu eru neikvæðastir hvað þetta varðar og þar er enn ríkjandi það viðhorf að atvinnuleysi eigi eftir að aukast.










Spurt var:
Telur þú að þínir hagir verði betri, svipaðir eða verri á árinu 2010 en þeir hafa verið á þessu ári?
En telur þú að á næsta ári verði efnahagsástand þjóðarinnar betra, verra eða svipað og á þessu ári?
En telur þú að atvinnuleysi eigi eftir að aukast, minnka eða standa í stað á næstu 12 mánuðum?
Telur þú að á næsta ári verði verkföll og átök á vinnumarkaði meiri, svipuð eða minni en á þessu ári?
En telur þú að á næsta ári verði deilur í alþjóðamálum meiri, svipaðar eða minni en á þessu ári?



Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 30. nóvember til 28. desember 2009. Svarhlutfall var 70,4%, úrtaksstærð 3.659 manns. Vikmörk eru 0,5-2,1%. Viðhorf til ársins 2010 eru úr netkönnun sem gerð var dagana 18. - 27. nóvember. Svarhlutfall var 69,5%, úrtaksstærð 1.477 einstaklingar. Viðhorf til loftslagsmála eru úr netkönnun sem gerð var dagana 9. - 27. desember. Svarhlutfall var 69,8%, úrtakstærð 2.344 einstaklingar. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup..
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share