Fréttir

Fylgi flokka í Reykjavík

04.12.2009

Þegar fylgi flokkanna í borginni er skoðað nú segjast 39% ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 34% Samfylkinguna, 21% VG og um 5% Framsóknarflokkinn.







Spurt var:

  • Ef kosið yrði í dag til borgarstjórnar hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokk eða lista er líklegast að þú myndir kjósa?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?



Niðurstöður sem hér birtast um fylgi stjórnmálaflokka á landsvísu og í Reykjavík eru úr netkönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 30. október - 29. nóvember. Heildarúrtaksstærð á landsvísu var 5.986 manns af öllu landinu en þar af voru Reykvíkingar 2.026 og svarhlutfall var 69,5%. Vikmörk á landsvísu eru 0,4-1,6%. Mæling á viðhorfi til aðskilnaðar ríkis og kirkju og til sveitarstjórnarmála eru úr netkönnun sem gerð var dagana 12. - 25. nóvember. Svarhlutfall var 70,8% og úrtaksstærð 2.403. Niðurstöður um líðan eru úr netkönnun sem var gerð annars vegar dagana 21. - 29. október og hins vegar dagana 12. - 18. nóvember. Svarhlutfall var 65,9% og úrtaksstærð 2.299. Úrtökin voru tilviljunarúrtök úr Viðhorfahópi Capacent Gallup. Í öll úrtökin voru valdir einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu.
Hvorki má birta fréttabréf þetta né upplýsingar úr því opinberlega án skriflegs leyfis Capacent.
Útgefið af: Capacent Gallup Borgartúni 27 105 Reykjavík Sími: 540 1000 Netfang: jona.sverrisdottir@capacent.is
Umsjón með útgáfu: Jóna Karen Sverrisdóttir og Jón Karl Árnason.
Ábyrgðarmaður: Dr. Guðbjörg Andrea Jónsdóttir. © Íslenskar markaðsrannsóknir 1993. Capacent 2008. Allur réttur áskilinn

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share