Veruleg óánægja með aðgerðir ríkisstjórnarinnar
06.07.2008Viðbrögð ríkisstjórnarinnar og Seðlabanka Íslands við versnandi efnahagsástandi vekja litla lukku meðal landsmanna. Sjö af hverjum tíu eru óánægðir með viðbrögð Seðlabankans og lítið færri eða 68% eru óánægð með viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Nokkur munur er á afstöðu eftir búsetu og eru 75% íbúa utan höfuðborgarsvæðisins óánægð með viðbrögð ríkisstjórnarinnar samanborið við 65% íbúa höfuðborgarsvæðisins. Mest er ánægja með viðbrögð bæði ríkisstjórnar og Seðlabanka meðal sjálfstæðismanna, 27% þeirra eru ánægð með viðbrögð ríkisstjórnarinnar og tæp 23% eru ánægð með viðbrögð Seðlabankans. Yfir 90% framsóknarmanna eru óánægð með viðbrögð ríkisstjórnarinnar og rúm 78% þeirra eru óánægð með viðbrögð Seðlabanka. Tekjulægstu hóparnir eru töluvert óánægðari með aðgerðir ríkisstjórnar og Seðlabanka heldur en þeir tekjuhærri.
Spurt var:
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með viðbrögð Seðlabankans við versnandi efnahagsástandi?
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með viðbrögð ríkisstjórnarinnar við versnandi efnahagsástandi?
Niðurstöður úr spurningum um ánægju með breytingar hjá sjálfstæðismönnum í borgarstjórn, um ferðamáta og áhrif eldsneytisverðs, um aldurstakmarkanir á skipulagðar útihátiðir og um aðgerðir í efnahagsmálum eru úr netkönnun sem gerð var dagana 20. - 29. júní. Svarhlutfall var ríflega 64%, úrtaksstærð 1.130 einstaklingar af öllu landinu í viðhorfahópi Capacent Gallup. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18-75 ára.
Allar fréttir