Fréttir

Stuðningur við aldurstakmarkanir á útihátiðir

06.07.2008

Í aðdraganda skipulagðra útihátíða kannaði Gallup viðhorf fólks til aldurstakmarkana á slíkar útihátíðir. Í ljós kom að nær þrír af hverjum fjórum eru hlynntir aldurstakmörkunum, á meðan tæplega fimmtungur er andvígur. Átta af hundraði svarenda segjast hvorki hlynntir né andvígir. Konur (79%) eru hlynntari aldurstakmörkunum en karlar (67%). Yngsti svarendahópurinn hefur allt önnur viðhorf en aðrir aldurshópar. Meirihluti (51%) hinna yngstu er andvígur aldurstakmörkunum skipulagðar útihátíðir og 43% eru hlynnt þeim, en í öðrum aldurshópum eru aðeins 10-15% andvíg og 71-83% hlynnt. Þegar spurt er hvaða lágmarksaldur sé hæfilegur, nefna flestir (53%) 18 ár, en tæplega þrír af hverjum tíu telja 20 ára aldurstakmark hæfilegt.

Spurt var:
Ertu almennt hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aldurstakmörkum á skipulagðar útihátíðir?
Hver finnst þér hæfilegur lágmarksaldur á skipulagðar útihátíðir?

Niðurstöður úr spurningum um ánægju með breytingar hjá sjálfstæðismönnum í borgarstjórn, um ferðamáta og áhrif eldsneytisverðs, um aldurstakmarkanir á skipulagðar útihátiðir og um aðgerðir í efnahagsmálum eru úr netkönnun sem gerð var dagana 20. - 29. júní. Svarhlutfall var ríflega 64%, úrtaksstærð 1.130 einstaklingar af öllu landinu í viðhorfahópi Capacent Gallup. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18-75 ára.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share