Fréttir

Ferðatilhögun og breyttar ferðavenjur

06.07.2008

Capacent Gallup kannaði í júní í fyrra hvað það tekur landsmenn að jafnaði langan tíma að komast til vinnu eða skóla á morgnana. Þá tók ferðin frá heimili til vinnu eða skóla að meðaltali 11,6 mínútur. Nú var þetta athugað á nýjan leik og varð niðurstaðan sú að ferðin tekur að jafnaði 12,6 mínútur, meðallengd ferðar hefur því aukist um eina mínútu. Athygli vekur að karlar eru 13,7 mínútur á leið í skóla eða vinnu að jafnaði, en konur ekki nema 11,5 mínútur. Lengstan tíma tekur að jafnaði að komast til skóla eða vinnu úr Árbæ og Grafarvogi, eða 15 mínútur, en skemmstan úr Miðbæ, Vestur– og Austurbæ að Elliðaám (10 mín).

Þegar spurt var með hvaða hætti fólk ferðast til vinnu eða skóla, reyndust flestir, eða tæplega 56%, ferðast einir í bíl. Þetta er lækkun um þrjú prósentustig frá í fyrra. Nær fimmtungur ferðast með öðrum í bíl sem er svipað og í fyrra. Karlar eru líklegri en konur til þess að ferðast einir í bíl (59% á móti 52%) en konur ferðast mun oftar en karlar með öðrum í bíl. Ríflega einn af hverjum tíu gengur til vinnu eða skóla, líkt og síðast, en notkun reiðhjóla eykst frá síðasta ári úr ríflega 3% í nær 8%. Sama gildir um notkun strætisvagna, hún eykst úr ríflega 2% í nær 4%.

Þegar tímalengd ferða er skoðuð með hliðsjón af ferðamáta, reynast þeir sem ganga eyða skemmstum tíma í ferðina, eða 8,5 mínútum að jafnaði. Þeir sem ferðast í bíl eru um 13 mínútur á leiðinni, hjólreiðamenn eru 14 mínútur en lengstan tíma taka rútu– og strætisvagnaferðir, eða 22-23 mínútur að jafnaði. Þá var spurt hvort fólk hefði breytt ferðatilhögun sinni til og frá vinnu eða skóla vegna hækkandi eldsneytisverðs. Nokkur meirihluti, eða 62 af hundraði, hefur í engu breytt sínum ferðavenjum.

Þetta hlutfall er lægra meðal Reykvíkinga (59%) en íbúa nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur (65%) eða landsbyggðarinnar (63%). Um 13 af hundraði hafa gert lítilsháttar breytingar á sínum ferðaháttum, tæplega fimmtungur hefur breytt þeim nokkuð og sex af hundraði svarenda hafa breytt þeim mikið. Af þeim sem hafa í einhverju breytt sínum ferðaháttum, sögðust þrír af hverjum tíu ferðast oftar á reiðhjóli, litlu færri fara oftar fótgangandi en áður, ríflega fimmtungur ferðast oftar með öðrum, 14% segjast nú keyra sparneytnari bíl en áður, nær einn af hverjum tíu fer oftar með strætisvagni en áður og rúmlega sjö af hundraði vinna oftar heimavið. Að öðru leyti segjast svarendur nýta ferðir betur, fækka ferðum og beita sparakstri (aka hægar).

Spurt var:
Hvernig ferðu að jafnaði til vinnu eða skóla á morgnana?
Hvað tekur það þig að jafnaði margar mínútur að komast beinustu leið frá heimili til vinnu eða skóla á morgnana, án viðdvalar á leiðinni?
Hefur þú breytt ferðatilhögun þinni til og frá vinnu eða skóla vegna hækkandi eldsneytisverðs?
Á hvaða máta hefur þú breytt ferðatilhögun þinni?

Niðurstöður úr spurningum um ánægju með breytingar hjá sjálfstæðismönnum í borgarstjórn, um ferðamáta og áhrif eldsneytisverðs, um aldurstakmarkanir á skipulagðar útihátiðir og um aðgerðir í efnahagsmálum eru úr netkönnun sem gerð var dagana 20. - 29. júní. Svarhlutfall var ríflega 64%, úrtaksstærð 1.130 einstaklingar af öllu landinu í viðhorfahópi Capacent Gallup. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18-75 ára.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share