Enn minnkar stuðningur við ríkisstjórnina
06.07.2008Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar nú sjöunda mánuðinn í röð. Stuðningurinn við stjórnina minnkar um þrjú prósentustig milli mánaða og nú styðja aðeins rösklega 52% stjórnina. Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með sama hlutfall og í síðasta mánuði, en ríflega 33% segjast myndu kjósa flokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um tæpt prósentustig og mælist flokkurinn nú með nær 30%, Vinstri hreyfingin-grænt framboð minnkar um tæplega tvö prósentustig og mælist nú með ríflega 20% fylgi. Framsóknarflokkurinn bætir við sig prósentustigi milli mánaða og mælist nú með liðlega 9%, Frjálslyndir tapa örlítið og mælast nú með rúmlega 4% fylgi og Íslandshreyfingin-lifandi land eykur fylgi sitt um ríflega eitt prósentustig en nær 2% segjast myndu kjósa flokkinn ef kosningar færu fram í dag. Næstum 10% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og ríflega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.