Almenn ánægja með að Hanna Birna taki við
06.07.2008Meirihluti kvenna er ánægður með að Hanna Birna Kristjánsdóttir skuli hafa tekið við af Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni sem oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík. Tæplega 44% karla segjast hvorki ánægð né óánægð með að Hanna Birna hafi tekið við. Átta af hverjum tíu sjálfstæðismönnum eru ánægðir með þessa breytingu en stærsta óánægða hópinn má finna í röðum Vinstri grænna en 30% þeirra eru óánægð með að Hanna Birna skuli hafa tekið við.
Mikil ánægja ríkir með það meðal sjálfstæðismanna að Hanna Birna verði næsti borgarstjóri í Reykjavík en rúmur helmingur stuðningsmanna Samfylkingar er óánægður með það og rúm 40% stuðningsmanna Vinstri grænna. Þrátt fyrir þessa breytingu er vart merkjanleg aukning á fylgi D-lista í borginni sem nú er með tæplega 29% fylgi. Samfylking hefur stuðning tæplega 52% borgarbúa, Vinstri hreyfingin-grænt framboð hefur 13% fylgi, F-listi 4% og framsóknarmenn tæp 3%.
Spurt var:
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með að Hanna Birna Kristjánsdóttir hafi tekið við af Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni sem oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins?
Hversu vel eða illa líst þér á að Hanna Birna Kristjánsdóttir verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur?
Ef kosið yrði í dag til borgarstjórnar hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa? En hvaða flokk eða lista er líklegast að þú myndir kjósa? Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Niðurstöður úr spurningum um ánægju með breytingar hjá sjálfstæðismönnum í borgarstjórn, um ferðamáta og áhrif eldsneytisverðs, um aldurstakmarkanir á skipulagðar útihátiðir og um aðgerðir í efnahagsmálum eru úr netkönnun sem gerð var dagana 20. - 29. júní. Svarhlutfall var ríflega 64%, úrtaksstærð 1.130 einstaklingar af öllu landinu í viðhorfahópi Capacent Gallup. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18-75 ára.
Allar fréttir