Fréttir

Ólíkt hlutskipti stjórnarflokkanna og ríkisstjórnar

04.06.2008

Þó samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna standi nánast í stað milli mánaða minnkar stuðningur við ríkisstjórnina um rösklega þrjú prósentustig milli mánaða. Stuðningurinn við hana hefur ekki mælst minni á kjörtímabilinu en 55% segjast styðja stjórnina nú. Verulegar breytingar eru á fylgi stjórnarflokkanna milli mánaða . Samfylkingin bætir við sig tæplega fimm prósentustigum og er nú með svipað fylgi og flokkurinn mældist með í kringum síðustu áramót, eða um 31%. Á hinn bóginn minnkar fylgi Sjálfstæðisflokksins um næstum fjögur prósentustig og mælist flokkurinn nú með rösklega 33% fylgi. Flokkurinn hefur ekki mælst með lægra fylgi síðan í janúar 2005. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli apríl og maí. Vinstri hreyfingin - grænt framboð bætir örlítið við sig og mælist með næstum 22% fylgi, Framsóknarflokkurinn lækkar um ríflega prósentustig og mælist nú með um 8%, Frjálslyndir lækka um næstum prósentustig og mælast með ríflega 5%. Rúmlega 16% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og nær 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosningar færu fram í dag.



Spurt var:
Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr símakönnun sem Capacent Gallup gerði dagana 29. apríl til 27. maí 2008. Svarhlutfall var ríflega 61%, úrtaksstærð 2.489 manns. Vikmörk eru 1-3%.

 

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share