Fréttir

Meirihluti telur fjárhagsstöðu sína hafa versnað

04.06.2008

Gallup kannaði áhrif samdráttar og gengislækkunar íslensku krónunnar á fjárhagsstöðu almennings. Rúmlega helmingur landsmanna telur fjárhagsstöðu sína hafa versnað á undanförnum mánuðum en 13% telja hana hins vegar hafa batnað á þeim tíma. 33% telja fjárhagsstöðu sína hvorki hafa batnað né versnað. Nokkur munur er merkjanlegur milli aldurshópa en almennt virðast þeir sem eldri eru telja fjárhagsstöðu sína hafa versnað meira en þeir sem yngri eru.


Spurt var:
Telur þú að fjárhagsstaða þín hafi batnað, staðið í stað eða versnað á undanförnum mánuðum?
Niðurstöður úr spurningum um ánægju með borgarstjóra, meirihlutann í borgarstjórn, ferðalög og lífskjör eru úr netkönnun sem gerð var dagana 15. - 26. maí. Svarhlutfall var tæplega 71%, úrtaksstærð 2.026 einstaklingar af öllu landinu í viðhorfahópi Capacent Gallup. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18-75 ára.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share