Fréttir

72% borgarbúa óánægð með störf borgarstjóra

04.06.2008

Capacent Gallup kannaði öðru sinni frá meirihlutaskiptunum í janúar ánægju með störf Ólafs F. Magnússonar, borgarstjóra, og meirihlutasamstarf sjálfstæðismanna við Frjálslynda og óháða í borgarstjórn Reykjavíkur. Nokkuð hefur dregið úr ánægju með störf borgarstjórans frá síðustu mælingu, en eingöngu 9% svarenda segjast nú ánægð með störf Ólafs F. Magnússonar samanborið við 16% í janúarmánuði.


Að þessu sinni segjast alls 67% landsmanna óánægð með störf Ólafs, sem er þremur prósentustigum meira en í janúar. Þegar eingöngu eru skoðuð svör þeirra sem búsettir eru í Reykjavík kemur í ljós að 68% borgarbúa segjast óánægð með störf Ólafs en 66% íbúa annarra sveitarfélaga eru óánægð með störf hans. Þegar svörin eru greind eftir því hvað fólk myndi kjósa kemur í ljós að eingöngu 2% kjósenda Vinstri grænna og 4% kjósenda Samfylkingar segjast ánægð með störf Ólafs samanborið við 17% kjósenda Sjálfstæðisflokks.

Vaxandi óánægja með meirihlutasamstarfið í borginni
Töluvert dregur einnig úr ánægju með meirihlutasamstarf sjálfstæðismanna og frjálslyndra og óháðra í borgarstjórn. 72% borgarbúa segjast óánægð með meirihlutann og aðeins 16% eru ánægð. Af kjósendum Sjálfstæðisflokksins, annars af meirihlutaflokkunum tveimur, eru 45% svarenda ánægð með meirihlutann en 28% óánægð. Einungis 2% stuðningsmanna Vinstri grænna og 3% stuðningsmanna Samfylkingar segjast ánægð með núverandi meirihluta.



Samfylking fengi meirihluta í borgarstjórn
Frá því í janúar hefur dregið mjög úr stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn. Tæp 27% borgarbúa segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef efnt yrði til kosninga nú, sem er 11 prósentustigum minna en mældist í janúar. Þetta er lægsta fylgi sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur nokkru sinni fengið í könnunum Gallup. Samkvæmt þessum tölum myndi Sjálfstæðisflokkurinn missa rúm 15% af kjörfylgi sínu og þar með þrjá af sjö borgarfulltrúum.

 

Samfylkingin fengi rúmlega 45% atkvæða sem er fjórum prósentustigum meira en flokkurinn mældist með í janúar. Frá síðustu borgarstjórnarkosningum myndi Samfylkingin því bæta við sig þremur borgarfulltrúum og fengi hreinan meirihluta ef kosið væri nú. Vinstri grænir, sem nú hafa tvo borgarfulltrúa, fengju rúm 19% atkvæða og myndu þar með bæta við sig einum borgarfulltrúa. Framsóknarflokkurinn sem og Frjálslyndir og óháðir myndu báðir missa sína borgarfulltrúa, Framsóknarflokkurinn fengi nú 4,2% atkvæða en Frjálslyndir og óháðir 3,3%.

Spurt var:
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með borgarstjóra Reykjavíkur, Ólaf F. Magnússon?
Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með meirihluta Sjálfstæðisflokks og Frjálslyndra og óháðra í borgarstjórn Reykjavíkur?
Ef kosið yrði í dag til borgarstjórnar hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
En hvaða flokk eða lista er líklegast að þú myndir kjósa?
Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?

 

Niðurstöður um fylgi flokka í Reykjavík eru úr síma– og netkönnun sem gerð var dagana 14.—27. maí. Úrtaksstærð 1.223 Reykvíkingar, svarhlutfall ríflega 67%. Vikmörk eru 1-4%. Niðurstöður úr spurningum um ánægju með borgarstjóra, meirihlutann í borgarstjórn, ferðalög og lífskjör eru úr netkönnun sem gerð var dagana 15. - 26. maí. Svarhlutfall var tæplega 71%, úrtaksstærð 2.026 einstaklingar af öllu landinu í viðhorfahópi Capacent Gallup. Í öllum úrtökum voru einstaklingar á aldrinum 18-75 ára.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share