Störf stjórnarandstöðunnar
12.11.1999Fleiri eru óánægðir með störf stjórnarandstöðunnar en ánægðir. Rúmlega 39% eru óánægð með störf hennar en rösklega 27% ánægð. Fleiri konur en karlar segjast hvorki vera ánægðar né óánægðar með störf stjórnarandstöðunnar, en fleiri karlar en konur eru ánægðir eða óánægðir með störf hennar. Yngsta fólkið er ánægðast með störf stjórnarandstöðunnar, eða tæplega 42% þeirra, en minnst er hún meðal fólks á aldrinum 25-44 ára, eða tæplega 21%. Á bilinu 23-34% fólks á aldinum 45-75 ára er ánægt með störf stjórnarandstöðunnar. Athyglisvert er hve lítill munur er á ánægju með störf stjórnarandstöðunnar eftir því hvort fólk kýs stjórnarflokkana eða stjórnarandstöðuflokkana. Einungis munar 10 prósentustigum á samfylkingarkjósendum, sem eru ánægðastir og kjósendum Sjálfstæðisflokksins, sem eru óánægðastir. Einnig kemur í ljós að enginn munur er á stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar og andstæðingum með ánægju með störf stjórnarandstöðunnar. Á hinn bóginn er mun hærra hlutfall þeirra sem ekki eru stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar óánægðir með störf stjórnarandstöðunnar, eða tæplega 51%, en næstum 35% stjórnarsinna. Munurinn felst í því að hærra hlutfall stuðningsmanna stjórnarinnar er hvorki ánægt né óánægt með störf stjórnarandstöðunnar.
Þegar spurt var hvers vegna fylgi Samfylkingarinnar væri minna nú en í kosningunum voru tæplega 35% sem sögðu að samstöðuleysi innan hreyfingarinnar væri um að kenna. Tæplega 15% sögðu að Samfylkingin hefði ekki staðið sig nógu vel og næstum12% sögðu að forystuleysi væri ástæðan fyrir minnkandi fylgi Samfylkingarinnar. Samtals er það því um helmingur sem nefnir skyld atriði á borð við forystu og samstöðuleysi.