Fréttir

Störf ráðherra Sjálfstæðisflokksins

12.11.1999

Flestir eru ánægðir með störf Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra, af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins, eða næstum 70 af hundraði. Ánægja með störf Geirs hefur aukist síðan hann tók við embætti. Næstur í röðinni kemur forsætisráðherra, Davíð Oddsson, en rúmlega 63% eru ánægð með hans störf. Ánægja með störf Davíðs fer nú örlítið uppá við eftir nokkra niðursveiflu fyrr á árinu. Um helmingur fólks á aldrinum 18-75 ára er ánægður með störf menntamálaráðherra, Björns Bjarnasonar, og dóms- og kirkjumálaráðherra, Sólveigar Pétursdóttur. Tæplega 47% eru ánægð með störf nýs samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssonar, en Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, nýtur þess vafasama heiðurs að fæstir eru ánægðir með störf hans, eða tæplega 45%.

Ef litið er á ánægju með störf ráðherranna eftir flokkslínum kemur í ljós að sjálfstæðismenn eru ánægðastir með störf Davíðs Oddssonar, þó að þeim hafi fækkað, og næst koma störf Geirs H. Haarde. Sturla Böðvarsson nýtur minnstrar ánægju með störf sín meðal sjálfstæðismanna og störf Sólveigar Pétursdóttur koma þar næst. Framsóknarmenn eru ánægðastir með störf fjármálaráðherra en óánægðastir með störf Árna Mathiesen. Sama er að segja um kjósendur Samfylkingarinnar þó að tölurnar séu lægri en hjá Framsóknarflokknum.
Karlar eru mun ánægðari en konur með störf Geirs H. Haarde en ekki er munur á ánægju með störf hans eftir aldri. Karlar eru einnig mun ánægðari en konur með störf Davíðs Oddsonar. Störf Davíðs njóta mestrar ánægju meðal yngsta fólksins, svo minnkar ánægjan jafnt og þétt en eykst svo aftur í elsta hópnum, þ.e. meðal þeirra sem eru 55-75 ára.

Ekki er munur á ánægju með störf Björns Bjarnasonar eftir kyni en þeir eldri eru mun ánægðari með störf Björns en þeir sem yngri eru. Marktækur munur er eftir kynjum með störf Árna Mathiesen þannig að mun fleiri karlar eru óánægðir með störf hans en konur, en fleiri konur en karlar eru hvorki ánægðar né óánægðar. Enginn munur er eftir aldri. Ekki er marktækur munur eftir kyni eða aldri á ánægju með störf Sólveigar Pétursdóttur og Sturlu Böðvarssonar.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share