Fréttir

Litlar breytingar

12.11.1999

Ekki eru miklar breytingar á fylgi flokkanna frá síðasta mánuði. Heldur fleiri segjast kjósa Samfylkinguna, Vinstrihreyfinguna-Grænt framboð og Framsóknarflokkinn núna en fyrir mánuði. Samfylkingin fengi rúmlega 19% fylgi, Framsóknarflokkurinn næstum 18% og Vinstri-Grænir 15% ef kosningar færu fram núna. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar heldur, hann hefur nú rúmlega 47% fylgi. Fylgi Frjálslynda flokksins minnkar talsvert og hefur hann innan við 1% fylgi.
Karlar eru meirihluti kjósenda allra flokkanna nema Samfylkingarinnar, en fleiri konur en karlar styðja hana. Fleiri konur en karlar eru á hinn bóginn óákveðnar um hvað þær myndu kjósa ef kosningar færu fram nú. Stuðningur við ríkisstjórnina er mikill, rúmlega 68% styðja hana. Fleiri karlar en konur styðja stjórnina. Tæplega 98% kjósenda Sjálfstæðisflokksins styðja stjórnina og tæplega 89% framsóknarmanna. Slétt 27% kjósenda Vinstri Grænna styðja stjórnina en tæplega 18% samfylkingarkjósenda. Næstum 17% voru óákveðin eða neituðu að svara, en rúmlega 8% sögðust ekki myndu kjósa eða skila auðu.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share