Aðskilnaður ríkis og kirkju
12.11.1999Tæplega 64% þeirra sem afstöðu taka eru hlynnt aðskilnaði ríkis og kirkju. Þetta er svipað hlutfall og fyrir ári síðan þegar tæplega 63% voru hlynnt aðskilnaði. Fylgjendum aðskilnaði ríkis og kirkju hefur fjölgað síðan fyrst var spurt í maí 1993 en þá voru 55,5% fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju. Fleiri karlar en konur eru fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju. Fylgi við aðskilnað ríkis og kirkju er mest meðal yngsta fólksins en minnkar svo eftir því sem fólk verður eldra og langminnstur stuðningur er við aðskilnað ríkis og kirkju meðal þeirra sem eru 55-75 ára.
Allar fréttir