Áhyggjur af aukinni verðbólgu
12.10.1999Rúmlega 72% hafa miklar áhyggjur af aukinni verðbólgu á Íslandi en rúmlega 20% hafa litlar eða engar áhyggjur af henni. Fleiri hafa persónulega orðið varir við aukna verðbólgi en ekki.
Mestar áhyggjur af aukinni verðbólgu hefur fólk á aldrinum 45-54 ára, eða rösklega 81%, en minnstar áhyggjur hefur fólk sem er 25-34 ára, eða tæplega 66% þeirra.
Rúmlega 19% sögðust mikið hafa orðið vör við aukna verðbólgu, rúmlega 41% hefur nokkuð orðið vart við hana, 29% hafa lítið orðið vör við aukna verðbólgu og rúmlega 10% ekkert.
Fleiri konur en karlar hafa persónulega orðið mikið eða nokkuð varar við aukna verðbólgu, eða rösklega 67% kvenna en um 54% karla. Næstum 47% þeirra sem eru 18-24 ára hafa persónulega orðið mikið eða nokkuð vör við aukna verðbólgu en rúmlega 66% þeirra sem eru 45-75 ára. Eftir því sem fólk hefur hærri heimilistekjur þeim mun minna hefur það orðið vart við verðbólgu. Þannig hafa næstum 72% þeirra sem hafa minna en 100 þúsund krónur í heimilistekjur á mánuði perónulega orðið nokkuð eð mikið vör við aukna verðbólgu en tæplega 55% þeirra sem hafa yfir 300 þúsund krónur í heimilistekjur á mánuði.